22.06.10
Rekinn / Fyret
Það var gott að Kim var ekki búinn að drasla mikið til á skrifborðinu sínu, það átt að taka uppsagnarfrestinn bókstaflega. Hann var rekinn úr vinnunni á föstudaginn var og sá sem rak hann stóð yfir honum þangað til hann var búinn að pakka og kominn út úr dyrunum. Hann var rekinn fyrir að vera ekki nógu sveigjanlegur! Kim skildi ekki neitt því að hann hafði gert allt sem hann var beðinn um en þau gátu ekki gefið honum neina nánari skýringu. Hann fór að fatta það eftirá hvernig hann hafði ekki verið nógu sveigjanlegur. Kim vann við að tryggja öryggi í sambandi við rafmagnið á olíupalli sem er verið að endurbyggja og fann út úr hlutum sem ekki voru eins og þeir áttu að vera, eins og t.d. að leiðslur sem áttu að vera úr efni sem getur ekki brunnið eða gefið frá sér reyk, voru úr eldfimu efni sem hefði gefið frá sér mikinn reyk hefðu þær brunnið. Reglurnar eru mismunandi eftir löndum og það var reynt að telja honum trú um að þetta væri allt í lagi, hann vildi fá að sjá áströlsku reglurnar en var neitað um það. Það var bara tíma spurning hvenær hann hefði komist í þær svo “project manager” rak hann, þau áttu á hættu að þurfa að leggja allar leiðslur aftur og það hefði auðvitað kostað bæði tíma og peninga. Ég get bara rétt ímyndað mér að það sé eitthvað fólk í Mexíkó flóanum sem hefur verið rekið fyrir að vilja gera vinnuna sína.
Kim er kominn heim aftur og enga vinnu að fá í Perth og ég með þriggja mánaða samning í minni vinnu.
Við reynum að horfa á þetta í svolítið stærra samhengi, þá verður það ekki eins alvarlegt, við erum öll frísk og enginn sveltur 7-9-13.
Det var heldigt at Kim ikke havde rodet meget på sit skrivebord, opsigelsesfristen skulle nemlig tages helt bogstavligt. Han blev fyret i fredags og “project manager” stod over ham indtil han havde pakket sammen og var ud af døren. Han blev fyret for, at ikke være fleksibel nok! Kim forstod ingenting, fordi han havde gjort alt hvad han blev bedt om, men de kunne ikke give ham nogen nærmere forklaring. Bagefter begyndte det langsomt, at gå op for ham hvor han ikke havde været fleksibel. De var ved, at modifisere en oljeplatform og Kim arbejdede med sikkerheden omkring den elektriske del af opgaven. Han fandt ud af, at ting ikke var som de skulle være f.eks. var der nogle kabler som skulle være lavet av materiale som ikke kunne brænde eller give røg fra sig. Kablerne var lavet av brandbart materiale som ville give fra sig en masse røg hvis de brændte. Regelværket er forskelligt fra land til land og de prøvede, at fortælle ham at dette var i orden. Han ville gjerne se de australske regler men blev nægtet adgang til dem. Det var bare spørgsmål om tid indend han havde fundet frem til dem selv – så han blev fyret. Ellers måtte de lægge alle kablerne om igen og det ville selvfølgelig have kostet både tid og penge. Jeg kan nemt forestille mig at der er nogen i den Mexicanske golf som er blevet fyret for at gøre sit arbejde ordentlig.
Kim er kommet hjem igen og ikke noget arbejde at få her i Perth og jeg har tre måneders kontrakt på mit arbejde.
Vi prøver at se på vores situation i den store sammenhæng, så bliver det ikke så forfærdelig alvorligt, vi er alle sammen friske og ingen sulter 7-9-13.
Frá /Fra: http://stuffnoonetoldme.blogspot.com/
Svo hjálpar þetta lag alltaf svolítið:
So hjælper denne sang en lille smule:
Always look on the bright side of life
Við erum byrjuð að leggja nýjar áætlanir og endum trúlega með að flytja aftur til Noregs, þaðan sem þetta lag kemur:
Vi er begyndt, at lægge nye planer og ender sandsynligvis tilbage i Norge hvor denne sang kommer fra:
Perth um miðjan vetur / Perth midt på vinteren:
http://www.yr.no/place/Australia/Western_Australia/Perth/long.html
Stavanger um mitt sumar/ Stavanger midt på sommeren:
http://www.yr.no/place/Norway/Rogaland/Stavanger/
Eitt verð ég þó að segja að Kim hefði aldrei verið rekinn í Noregi fyrir að fara eftir reglunum um öryggi á olíupalli og hann hefði fengið atvinnuleysisbætur þar á meðan hann er atvinnulaus.
En ting må jeg dog sige, Kim ville aldrig have blevet fyret i Norge for, at følge reglerne om sikkerhed på en oljeplatform og han ville have fået arbejdløshedsunderstøttelse imens han var arbejdsløs.

Þórhanna said,
22 June, 2010 at 9:01 pm
Gott að sjá að þú ert með húmorinn í lagi, þó það sé sannkallaður gálgahúmor.
Ég er stolt af Kim , fólkið á borpöllunum treystir þeim sem sjá um öryggismálin fyrir lífi sínu, fyrir utan allan skaðann, sem brunninn borpallaur veldur.
Gangi ykkur vel .
Mamma
Hanne said,
23 June, 2010 at 1:03 am
10 – 0 til Kim!!!
Og ditto til Norge for sosialdemokratiske arbeidsforhold.
Og hadde du nå sjekket temperaturen i Oslo, ikke Stavanger, så ville det blitt 0-0 i den kampen, ikke 1 – 0 til Perth/Australia! (Tropeheten om sommeren regner jeg ikke med. Den er helsefarlig, brannfarlig og tar ikke engang knekken på kakkerlakkene!)
PS
Britisk humor er ikke å forakte
Rósa said,
24 June, 2010 at 5:28 am
Ef að allir hugsuðu eins og Kim væri heimurinn betri. Hann má vera stoltur af því sem hann gerði. Þetta verður svo í framtíðinni ein sagan í stóra reynslubankann sem þið hafið upplifað.
Þætti ekkert verra að vita af ykkur í Noregi, það er ekki eins fjarlægt og Ástralía.