13.03.10

Beðið eftir rigningu / Venter på regn

Posted in Hverdagen, Náttúra at 4:52 pm by Ásdís

Það var búið að spá rigningarskúrum í dag – ég er enn að bíða.

De sagde det var udsigt til regnbyger i dag – jeg venter stadigvæk.

1 Comment »

  1. Þórhanna said,

    13 March, 2010 at 10:14 pm

    Hæ!

    Mér datt í hug þetta ljóð eftir Inga.
    Mér sýnist að jörðinni veit ekki af rigningu.

    Velkomin, rigning

    Velkomin rigning! Vertu hér í nótt.
    Vinsælir dropar falla milt og rótt.
    Hríslast um hár og andlit atlot þín.
    Ertu nú loksins komin, góða mín?

    Þú hefur verið þráð og til þín mænt.
    Þú ert sú dís er litar Ísland grænt,
    skreytir með lífi skriðubrúnan kjól,
    skrýðir með flosi þínu laut og hól.

    Veistu nú bara? Hóllinn okkar hér
    hefur nú tekið þig að vanga sér.
    Meðan hann fraus og þegar þurrkur sveið
    þá var það hann sem unnustunnar beið.

    Nú ertu komin ung og ástúðleg
    eftir að hafa stigið langan veg,
    fingrunum strýkur gegnum hólsins hár,
    hlýleg og mild við allar góðar þrár.

    Velkomin, það er engin eins og þú.
    Aldrei var jörðin grænni en hún er nú.
    Gældu við blómin glatt og milt og rótt.
    Góð ertu, rigning. Vertu hér í nótt.

    G I K.

Leave a Comment