31.07.10

Að selja hús / At sælge et hus

Posted in Hverdagen at 11:51 am by Ásdís

 Þetta er þriðja helgin sem fasteignasalan heldur opið hús hérna og ég er strax orðin þreytt á því, ég veit ekki hvernig þetta endar ….. vonandi með að við seljum húsið. Fréttirnar sem maður les hérna eru heldur ekki neitt sérstaklega skemmtilegar.

Nu er det den tredje weekend, ejendomsmægleren har visning her og jeg er allerede træt af det, jeg ved ikke hvor det her ender…..forhåbentlig med, at vi sælger huset. Nyhederne man læser er hellere ikke særlig opmuntrende.

“Australian house prices have fallen for the first time in 17 months, as rising interest rates and the end of government stimulus payments crimp demand. …..Among the capital cities, Perth remained the worst performer with a 2.5 per cent fall in the June quarter, while Adelaide’s 1.1 rise was the strongest result.”

Fasteignasalinn gerir allavega allt sem hann getur, þetta er ein myndin úr bæklingnum.

Ejendomsmægleren gør i hvert tilfælde  alt hvad han kan, dette er en af billederne i brochyren.

26.07.10

Góður dagur / En dejlig dag

Posted in Náttúra at 9:16 pm by Ásdís

Ég átti góðan dag í gær, var “vakin” (það tók Kim smátíma að baka afmælisbollurnar) með heitu súkkulaði og bollum, söng og gjöfum.

Jeg havde en dejlig dag i går, blev “vækket” (det tog lidt tid for Kim, at bage fødselsdagsbollerne) med varm chokolade, fødselsdagsboller, sang og gaver.

  

Það var líka aldeilis munur að vera heiðruð með “badge”.

Det var også en ære, at blive dekoreret med et ”badge”.

  

Jóhann skreytti surtabrand og Davíð kom með blóm og hjálpaði okkur að borða hann.

Johann dekorerede kagen og David bragte blomster og hjalp os med, at spise den.

 

Kærar þakkir fyrir gjafir og góðar kveðjur í tilefni dagsins.

Mange tak for gaver og varme hilsener i dagens anledning.

18.07.10

Litum við / Kikkede forbi

Posted in Dýralíf, Hverdagen at 6:07 pm by Ásdís

Við kíktum til Davíðs í dag, ég hef ekki heimsótt hann þar fyrr þó að hann sé búinn að eiga  heima þarna síðan í febrúar. Hann leigir stórt hús með fjórum norskum strákum og hann kann þetta að finna húsnæði með útsýni.

Vi kikkede forbi David i dag, jeg har ikke været der før selvom han har boet der siden i februar. Han lejer et stort hus sammen med fire Nordmænd. Han kan det der med, at finde en bolig med god udsigt.

Hann var í tíu daga fríi á Bali um daginn og ég fékk leyfi til að birta nokkrar myndir hérna á síðunni úr þeirri ferð.

Han var på en ti dagers ferie på Bali for kort tid siden og jeg fik lov, at sætte nogle billeder fra turen her på siden.

  

  

17.07.10

Atvinnuauglýsingar / Jobannoncer

Posted in Hverdagen at 6:57 pm by Ásdís

Stundum veit maður ekki hvort maður á að hlæja eða gráta, Kim er búinn að vera atvinnulaus í hálft ár og búinn að vera að leita fyrir sér með vinnu í næstum eitt ár. Allan þann tíma hafa varla verið auglýstar stöður sem hann gat sótt um. Í dag uppgötvuðum við að eftir að við settum húsið á sölu hafa atvinnuauglýsingarnar sprottið upp eins og gorkúlur og nú eru sjö mismunandi auglýsingar um stöður hérna í Perth sem eru eins og sniðnar fyrir Kim!

Af og til er det svært, at vide om man skal græde eller grine. Kim har været arbejdsløs i et halvt år og kikket efter job i næsten et år. Hele den tid har der kun været en stilling han kunne søge i Perth som var lige i øjet. I dag fandt vi ud af, at efter at vi satte huset på salg er der blevet annonceret mindst syv stillinger her i Perth som er som skræddersyet til Kim!

16.07.10

Rauðhærður forsætisráðherra / En rødhårig statsminister

Posted in Hverdagen at 10:57 pm by Ásdís

Fyrir u.þ.b. þremur viku eignuðust Ástralir nýjan forsætisráðherra. Það var mikið látið með það að hún væri fyrst kvenkyns forsætisráðherra Ástralíu. Sjálf sagðist hún ekki vita hvort væri merkilegra á okkar dögum að hún væri kona eða að hún væri rauðhærð. Mamma hennar sagði af henni sögu í The West Australian sem mér fannst dálítið góð og ætla að birta hérna.

For c.a. tre uger siden fik Australerne en ny statsminister. Det blev meget omtalt i medierne at hun er Australiens første kvindelige statsminister. Selv sagde hun, at hun ikke vidste om det var mærkeligere i vores tid at hun er en kvinde eller at hun er rødhårig. Hendes mor fortalte en historie om hende til The West Australian som jeg har lyst til, at gentage her.

“Julia could not understand why the girls should stay in class to tidy up the classroom while the boys were just running around having a good time. ….. So she said to the teacher that was not fair. Why couldn’t the boys do it one week and they do it the next week. He said to her, `Are you into women’s liberation, Julia.` And she said, she looked at him with utter scorn and said, `I don’t need women’s liberation, I was born free’.”   (scorn=fyrirlitning=foragt)

14.07.10

For Sale

Posted in Hverdagen at 6:04 pm by Ásdís

Þá er þetta orðið að veruleika, húsið okkar til sölu!

Så er det virkelighed, vores hus er til salg!

13.07.10

Peysa / En trøje

Posted in Hverdagen at 11:17 pm by Ásdís

Það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur að ég hef ekki haft tíma eða löngun til að skrifa á síðuna hérna. Mig langar samt til að segja frá því að ég fékk afmælisgjöf frá mömmu, svolítið snemma af því að það er svo kalt hérna. Hún er búin að prjóna eina peysuna enn og mér finnst hún alveg einstaklega falleg enda hef ég varla farið úr henni síðan ég opnaði pakkann í dag.

Vi har haft det så travelt, at jeg hverken har haf tid eller lyst til, at skrive på siden her. I dag fik jeg dog lyst til, at fortælle at jeg har fået en fødselsdagsgave fra min mor, lidt tidligt på grund af, at det er så koldt her. Jeg fik denne lækre trøje hun har strikket og jeg har haft den på siden jeg åbnede pakken.