25.06.10

“Jóladagur” / “Første juledag”

Posted in Hverdagen at 8:32 am by Ásdís

Allt er á hvolfi hérna svo í dag er það sem samsvarar jóladegi á norðuhveli jarðar enda var líka kalt í morgun,við hefðum næstum fengið hvít jól ef jólin væru haldin hérna að vetri til.

Her er alting på hovedet og i dag er det dagen som svarer til første juledag på den nordlige halvkule. Det var også meget koldt i morges og lige før vi ville have fået hvid jul hvis man fejrede jul om vinteren.

 

22.06.10

Aðdráttarlinsa / En zoomlinse

Posted in Dýralíf, Náttúra at 8:41 pm by Ásdís

Kim náði sem betur fer að kaupa aðdráttarlinsu áður en hann missti vinnuna! Við fórum í göngutúr um hverfið á sunnudaginn og það var laveg ótrúlega gaman að taka myndir.

Heldigvis nåede Kim, at købe en zoom linse til kameraet før han mistede arbejdet! Vi gik en tur i nabolaget i søndags og det var utrolig sjovt, at tage billeder.

 

  

Rekinn / Fyret

Posted in Hverdagen at 8:14 pm by Ásdís

Það var gott að Kim var ekki búinn að drasla  mikið til á skrifborðinu sínu, það átt að taka uppsagnarfrestinn bókstaflega. Hann var rekinn úr vinnunni á föstudaginn var og sá sem rak hann stóð yfir honum þangað til hann var búinn að pakka og kominn út úr dyrunum. Hann var rekinn fyrir að vera ekki nógu sveigjanlegur! Kim skildi ekki neitt því að hann hafði gert allt sem hann var beðinn um en þau gátu ekki gefið honum neina nánari skýringu.  Hann fór að fatta það eftirá hvernig hann hafði ekki verið nógu sveigjanlegur. Kim vann við að tryggja öryggi í sambandi við rafmagnið á olíupalli sem er verið að endurbyggja og fann út úr hlutum sem ekki voru eins og þeir áttu að vera, eins og t.d. að leiðslur sem áttu að vera úr efni sem getur ekki brunnið eða gefið frá sér reyk, voru úr eldfimu efni sem hefði gefið frá sér mikinn reyk hefðu þær brunnið. Reglurnar eru mismunandi eftir löndum og það var reynt að telja honum trú um að þetta væri allt í lagi, hann vildi fá að sjá áströlsku reglurnar en var neitað um það. Það var bara tíma spurning hvenær hann hefði komist í þær svo “project manager” rak hann, þau áttu á hættu að þurfa að leggja allar leiðslur aftur og það hefði auðvitað kostað bæði tíma og peninga. Ég get bara rétt ímyndað mér að það sé eitthvað fólk í Mexíkó flóanum sem hefur verið rekið fyrir að vilja gera vinnuna sína.
Kim er kominn heim aftur og enga vinnu að fá í Perth og ég með þriggja mánaða samning í minni vinnu.
Við reynum að horfa á þetta í svolítið stærra samhengi, þá verður það ekki eins alvarlegt, við erum öll frísk og enginn sveltur 7-9-13.

Det var heldigt at Kim ikke havde rodet meget på sit skrivebord, opsigelsesfristen skulle nemlig tages helt bogstavligt. Han blev fyret i fredags og “project manager” stod over ham indtil han havde pakket sammen og var ud af døren. Han blev fyret for, at ikke være fleksibel nok! Kim forstod ingenting, fordi han havde gjort alt hvad han blev bedt om, men de kunne ikke give ham nogen nærmere forklaring. Bagefter begyndte det langsomt, at gå op for ham hvor han ikke havde været fleksibel. De var ved, at modifisere en oljeplatform og Kim arbejdede med sikkerheden omkring den elektriske del af opgaven. Han fandt ud af, at ting ikke var som de skulle være f.eks. var der nogle kabler som skulle være lavet av materiale som ikke kunne brænde eller give røg fra sig. Kablerne var lavet av brandbart materiale som ville give fra sig en masse røg hvis de brændte. Regelværket er forskelligt fra land til land og de prøvede, at fortælle ham at dette var i orden. Han ville gjerne se de australske regler men blev nægtet adgang til dem. Det var bare spørgsmål om tid indend han havde fundet frem til dem selv – så han blev fyret. Ellers måtte de lægge alle kablerne om igen og det ville selvfølgelig have kostet både tid og penge. Jeg kan nemt forestille mig at der er nogen i den Mexicanske golf som er blevet fyret for at gøre sit arbejde ordentlig.
Kim er kommet hjem igen og ikke noget arbejde at få her i Perth og jeg har tre måneders kontrakt på mit arbejde.
Vi prøver at se på vores situation i den store sammenhæng, så bliver det ikke så forfærdelig alvorligt, vi er alle sammen friske og ingen sulter 7-9-13.

Frá /Fra: http://stuffnoonetoldme.blogspot.com/

Svo hjálpar þetta lag alltaf svolítið:

So hjælper denne sang en lille smule:

Always look on the bright side of life

Við erum byrjuð að leggja nýjar áætlanir og endum trúlega með að flytja aftur til Noregs, þaðan sem þetta lag kemur:

Vi er begyndt, at lægge nye planer og ender sandsynligvis tilbage i Norge hvor denne sang kommer fra:

Evig pint

Perth um miðjan vetur / Perth midt på vinteren:

http://www.yr.no/place/Australia/Western_Australia/Perth/long.html

Stavanger um mitt sumar/ Stavanger midt på sommeren:

http://www.yr.no/place/Norway/Rogaland/Stavanger/

Eitt verð ég þó að segja að Kim hefði aldrei verið rekinn í Noregi fyrir að fara eftir reglunum um öryggi á olíupalli og hann hefði fengið atvinnuleysisbætur þar á meðan hann er atvinnulaus.

En ting må jeg dog sige, Kim ville aldrig have blevet fyret i Norge for, at følge reglerne om sikkerhed på en oljeplatform og han ville have fået arbejdløshedsunderstøttelse imens han var arbejdsløs.

19.06.10

Boggsíða / En blogside

Posted in Náttúra at 10:37 am by Ásdís

Dagur frændi minn benti mér á skemmtilega bloggsíðu.

Min nevø Dagur gav mig linken til denne interessante blogside.

http://stuffnoonetoldme.blogspot.com/

16.06.10

Nýir nágrannar / Nye naboer

Posted in Hverdagen at 3:07 pm by Ásdís

Ég er búin að vera heima í dag og hef uppgötvað að nýju nágrannarnir eru greinilega flutt inn, allavega hundurinn þeirra. Hann er búinn að spangóla og gelta eiginlega stanslaust síðan í morgun, það eru komnir 6 klukkutímar núna. Honum virðist leiðast alveg hræðilega að vera einn heima – og hver getur láð honum það?

Jeg har været hjemme i dag og har opdaget at de nye naboer er flyttet ind, i hvert fald deres hund. Den har gøet og hylet mere eller mindre hele dagen, i snart 6 timer. Han ser ud til, at kede sig helt forfærdelig alene hjemme – og hvem kan bebrejde den det?

11.06.10

Vetrardagur / En vinterdag

Posted in Hverdagen at 9:52 pm by Ásdís

Ég á eiginlega ekki að vera að setja svona myndir á bloggið því þá tekur enginn mark á mér þegar ég er að kvarta yfir kuldanum hérna. Ég er í loðfóðruðu innistígvélunum mínum og fleiri peysum – en það breytir því ekki að vetrardagurinn sem var að líða var mjög fallegur.

Egentlig skulle jeg ikke lægge ud sådan nogen billeder her for så er der ingen som gider, at høre på når jeg klager over hvor koldt det er. Jeg er iført mine skindindestøvler og flere trøjer – men det ændrer ingenting ved, at vinterdagen som er blevet til aften var rigtig smuk.

Við ákváðum í dag að Kim kæmi hingað á morgun. Það er frídagur i Melbourne á mánudaginn og Kim kemst ekki inn á vinnustaðinn til að vinna - svo hann kemur hingað í staðinn, verst að ég er að vinna en við fáum þá allavega sunndaginn saman.

I dag da Kim fandt ud af at han ikke kan gå på arbejde på mandag på grund af en officiel fridag i Melbourne besluttede vi at han i stedet kommer hjem i morgen. Desværre må jeg jo på arbejde på mandag, men vi får i hvert fald søndagen sammen.

09.06.10

Kim

Posted in Hverdagen at 4:47 pm by Ásdís

Hér er Kim tilbúinn í slaginn aðfaranótt mánudags. Vélinni héðan seinkaði svo hann þurfti að bíða aukalega í næstum einn og hálfan tíma á flugvellinum og kom of seint í vinnu á mánudagsmorgni í Melbourne. Hann var víst ansi þreyttur á mánudagskvöldið, var kominn í rúmið um hálfátta leytið. Vinnustaðurinn útvegar honum húsnæði fyrstu tvær vikurnar en svo verður hann að finna húsnæði sjálfur. Honum líst ágætlega á vinnuna og það er gott í honum hljóðið. Hann er hvorki með net eða tölvu nema í vinnunni svo ekki gera ráð fyrir að heyra neitt í honum í bráð.

Her står Kim klar til nye udfordiringer natten til mandag. Flye var forsinket så han måtte vente i næsten en og en halv time ekstra  i lufthavnen og kom for sent på arbejde mandagmorgen i Melbourne. Han var vist meget træt mandagaften og var i seng ved halvåttetiden om aftenen. Arbejdspladsen sørger for en lille hotel lejlighed de første to uger men så må han finde et sted, at bo. Han har et godt indtryk af arbejdet og er ved, at komme rigtig i gang nu. Han har hverken internet eller computer andet end på arbede så ikke forvent, at høre fra ham foreløbig.

04.06.10

Ströndin / Stranden

Posted in Hverdagen, Náttúra at 3:05 pm by Ásdís

Við erum að reyna að ná að gera allt áður en Kim flytur til Melbourne á mánudaginn. Hann er hjá tannlækni núna, flýtti tímanum sínum svo að það næðist líka. Við gerum nú líka skemmtilegri hluti. Í morgun borðuðum við morgunmat á veitingahúsi niður við strönd og fórum svo í göngutúr. Strendurnar hérna eru alveg ótrúlegar og ég þreytist aldrei á að virða fyrir mér litina í sjónum.

Vi forsøger at nå alting før Kim flytter til Melbourne på mandag. Nu er han hos tandlægen, fik flyttet sin tid så også det kunne nås. Vi laver også hyggeligere ting, i morges spiste vi morgenmad på en restaurant nede ved stranden og bagefter gik vi en tur. Strandene her er helt fantastiske og jeg bliver aldrig træt af at betragte farvene på vandet.

  

  

02.06.10

Allt á fullu / Fuld fart på

Posted in Hverdagen at 10:29 am by Ásdís

Kim er kominn með vinnu í Melbourne, hann skrifaði undir 6 mánaða samning í gær. Hann byrjar á mánudaginn og uppsagnarfresturinn er einn klukkutími! Það er allt búið að vera á fullu síðan hann fékk samninginn, það hefur ekki gerst mikið hérna heima undanfarna fjóra mánuði en nú er búið að pússa og sparsla, komnir múrsteinar og sandhrúga hérna fyrir aftan hús og Jóhann er kominn með nýtt herbergi.

Kim har fået nyt arbejde i Melbourne, i går underskrev han en kontrakt på 6 måneder. Han begynder på mandag og opsigelsesfristen er en time! Her har det været fuld fart på siden han fik kontrakten, det er ikke sket meget i huset de sidste fire måneder men nu pusses det og bejdses, mursten hentes og der er kommet en lille sandhøj i baghaven og Johann har fået et nyt værelse.

 

01.06.10

Appelsínur / Appelsiner

Posted in Hverdagen at 1:57 pm by Ásdís

Við heimsóttum Annemette,Vasanta og stelpurnar á laugardaginn var í nýja húsið þeirra eða ég ætti kannski frekar að segja í nýja garðinn þeirra. Vasanta er með græna fingur svo þó að þau séu bara búin að búa þarna í u.þ.b. þrjá mánuði þá grær allt í garðinum á fullu. Hann er búinn að koma sér upp vatnsveitukerfi sem tekur tíuþúsund lítra af rigningarvatni, það var fullt á laugardaginn. Appelsínutréð sem fyrri eigendur sögðu að þeir hefðu aldrei fengið af var þakið appelsínum. Við fengum stóran poka með heim og ég hef sjaldan smakkað eins góðar appelsínur, hreint sælgæti.

Sidste lørdag besøgte vi Annemette, Vasanta og pigerne i deres nye hus, jeg skulle måske hellere sige i deres nye have. Vasanta har grønne fingre så selvom de kun har boet der i omkring tre måneder så spirer alting der og gror. Han har lavet et vandingssystem som tager titusind litre regnvand, det var fyldt op i lørdags. Appelsintræet som de tildigere ejere sagde, at de aldrig fik noget af var dækket med appelsiner. Vi fik en stor pose med hjem og jeg har sjælden smagt så gode appelsiner, det rene slik.