31.05.10
Posted in Hverdagen at 2:58 pm by Ásdís
Loksins komumst við á leik með Fremantle aftur, við höfum verið of sein að kaupa miða og það hefur verið uppselt á leikina undanfarið. Anna og Vance gáfu mér trefil áður en þau fóru og Kim erfði vestið hans Vance, svo nú getur enginn verið í vafa um með hverjum við höldum.
Endelig fik vi billetter igen til en kamp med Framantle, på det sidste har vi været for sene med, at købe dem så det har været udsolgt. Jeg fik et tørklæde af Anna og Vance før de rejste og Kim arvede Vances vest så du er der ingen som kan være i tvivl om hvem vi holder med.

Dockers unnu North Melbourne (The Kangaroos) með miklum mun í gær og stemmningin á pöllunum var frábær. Hérna fer allskonar fólk á leikina, smábörn og gamlingjar og allt þar á milli og ég hef aldrei heyrt upp neitt ofbeldi á áhorfendapöllunum - bara niðri á vellinum.
I går vandt Docers stort over North Melbourne (The Kangaroos) og stemningen blandt tilskuerne var fantastisk. Her går alle mulige slags mennesker til kampene, små børn, gamle mennesker og alt der imellem. Jeg har aldrig hørt om vold på tilskuerbænkerne – kun nede på banen.

Allir Dockers aðdáendur voru ljúfir og glaðir eftir leikinn sem tók um þrjá tíma í allt svo sólin var að setjast þegar við komum út. Kim keypti sér hatt fyrir leikinn svo hann væri í stíl við okkur hin, klæðir hann alveg ágætlega.
Alle Dockers fansene var glade og tifreds efter kampen som tog omkring tre timer i det hele så da vi kom ud var solen ved at gå ned. Kim købte en kasket før kampen så han kunne være i stil med os andre, den klær ham udmærket.

Permalink
26.05.10
Posted in Hverdagen at 11:02 pm by Ásdís
Þar kom að því, núna eru Anna og Vance flutt frá Ástralíu. Við eigum eftir að sakna þeirra mikið.
Da skete det, Anna og Vance er flyttet fra Australien. Vi kommer til at savne dem.


Permalink
21.05.10
Posted in Hverdagen at 1:07 pm by Ásdís
“A blog is a reflective journal designed for public scrutiny and comment.”
Ég man ekki hvar ég las þessa setningu nýlega og var að hugsa að það hafa nú ekki verið fyrirferðamiklar hugleiðingar á síðunni minni í langan tíma. Það eru margar tölur sem hafa farið í gegnum hugann undanfarið, aftur og aftur og kannsi þær geti verið jarðvegur fyrir hugleiðingar.
Jóhann hefur hækkað um 1,5 sm á tveimur mánuðum. Það er 5 dagar þangað til Anna og Vance flytja aftur til Bandaríkjanna. Gengi ástralska dollarans hefur lækkað um 9 prósent á einni viku. Það eru 93 dagar síðan Kim varð atvinnulaus. Hann er að fara í atvinnuviðtal um tímabundinn samning á mánudaginn, það fer fram í gegnum síma því að vinnan er í Melbourne. Það eru 2.723 kílómetrar á milli Melbourne og Perth. Við seldum húsið okkar í Noregi á tæplega 18.000 norskar krónur fermetrann, nú er meðalverð á húsnæði í Stavanger 36.000 norskar krónur fermetrinn og hérna hefur húsnæðisverð lítið hækkað síðan við komum. Ég held að tölurnar séu orðnar alveg nógu háar, nóg í bili!
“A blog is a reflective journal designed for public scrutiny and comment.”
Jeg læste ovenstående sætning for nylig, men husker ikke hvor. Det er lang tid siden jeg har reflekteret noget særlig her på blogsiden. For tiden går der mange tall igennem hovedet, igen og igen, måske de kan være end grobund for reflektion.
Johann har vokset 1,5 cm på to måneder. Om 5 dage flytter Anna og Vance tilbage til USA. Kursen på den Australske dollar er faldet med 9 procent den sidste uge. Det er 93 dage siden Kim mistede arbejdet. Han skal til et jobinterview på mandag angående en tidsbegrænset kontrak, det foregår igennem telefonen siden arbejdet er i Melbourne. Det er 2.723 km imellem Melbourne og Perth. Vi solgte vore hus i Norge til lidt under 18.000 norske kroner per kvadratmeter, i dag er gennemsnit prisen på bolig i Stavanger på 36.000 norske kroner og her har boligprisen ikke steget meget. Nok med tall nu, de er blevet høje!
Permalink
20.05.10
Posted in Hverdagen at 10:06 pm by Ásdís
Anna og Vance buðu okkur í morgunmat á The Kiosk, sem er veitingahús sem liggur niður á strönd. Það var mjög góður matur og gott kaffi. Ég held það sé varla hægt að byrja daginn betur en þetta.
Anna og Vance bød på morgenmad på The Kiosk, en restaurant som ligger på stranden. Både maden og kaffen var rigtig god. Jeg tror næppe man kan begynde dagen på en bedre måde.
http://www.thekioskfloreatbeach.com.au/the-kiosk-photo-gallery.html

Permalink
17.05.10
Posted in Hverdagen at 10:07 pm by Ásdís
Ég er komin með nýja “profile Picture” á Facebook og mig langaði til að sýna ykkur sem ekki eruð á Facebook (mamma og Rúrik) nýju klippinguna mína. Ég hef ekki verið svona stutthærð í mörg, mörg ár.
Jeg har fået et nyt profil billede på Facebook, jeg ved der er nogen som ikke er på Facebook men kikker af og til på denne her side (Hanne, Louise, Frank, Tove, Kirsten, Sonja og Lise) og jeg fik lyst til, at vise jer mine nye klipning. Jeg har ikke været så kortklippet i mange, mange år.

Permalink
Posted in Náttúra at 9:58 pm by Ásdís
Mamma prjónaði peysu á Kim sem hann fékk í dag, hún kemur sér aldeilis vel í kuldanum, enda er hann búinn að vera í henni síðan hann fékk hana! Hún er mjög fín á honum.
Mor strikkede en trøje til Kim som han fik i dag. Den er virkelig god her i kulden og Kim har også haft den på siden han fik den! Den klæder ham rigtig godt.

Permalink
16.05.10
Posted in Hverdagen, Náttúra at 6:51 pm by Ásdís
Við fórum í göngutúr um nágrennið í þessu fína haustveðri.
Vi gik en tur i nabolaget i det fine efterårsvejr.

Við komum auga á bíflugnabú og Kim vildi endilega fara upp að því og skoða og taka myndir, ég hélt mér í fjarlægð.
Vi så en bikube og Kim fik lyst at undersøge det nærmere og tage billeder, jeg holdt mig på afstand.

Það endaði með að flugunum fannst hann einum of nærgöngull og hann var stunginn. Sem betur fer er hann ekkert alvarlega meiddur.
Det endte med, at bierne synes han var grænsoverskridende og han blev stukket. Heldigvis er det ikke noget alvorligt.

Friðsældin réði ríkjum það sem eftir var ferðarinnar.
Resten af turen var fredelig.

Permalink
14.05.10
Posted in Náttúra at 10:42 pm by Ásdís
Ég veit ekki hvort það sést nógu vel á mydinni en líkamsræktarstöðin hérna næst okkur virðist vera rekin með útfarastofnun, ekki beint hvetjandi að skrá sig þar, enda höfum við aldrei stigið fæti þar inn.
Jeg ved ikke om man kan se det godt nok på billedet, men vores lokale treningscenter ser ud til, at være i tæt samarbejde med et begravelsesbureau. Ikke særlig betryggende at melde sig ind der, men vi har også holdt os væk derifra.

Við reynum bara að vera í heimaræktinni….
Vi træner bare herhjemme i vores have…..

…og förum í göngutúr á ströndinni….
…og går en tur på stranden….

….þó að það virðist nú geta verið hættulegt.
…selvom det åbenbart kan være tæmmelig farligt.


Permalink
Posted in Hverdagen at 5:53 pm by Ásdís
Nú vantar mig hana mömmu mína, ég er búin að gleyma hvernig á að prjóna klukkuprjón og ég get ekki farið eftir uppskrift þó ég væri með hana. Ég lít yfirleitt á sjálfa mig sem þolinmóða, rólega og yfirvegaða manneskju! Ég veit samt þegar kemur að handavinnuuppskriftum eða leiðbeiningum fyrir tölvu þá hef ég ENGA þolinmæði, það sýður hreinlega á mér ef ég skil ekki eins og skot hvað ég á að gera – og svo spring ég og gefst upp. Mér finnst klukkuprjón svo fínt í trefil og mig langar svo til að prjóna trefla en verð víst að hekla þá í staðinn. Reyndar hefur Kim komið tómhentur heim í tvö síðustu skipti sem hann hefur farið í bæinn til að kaupa miða á Dockers leik. Ég reikna nú samt með að við komumst einhverntíma á leik með þeim aftur og þá væri gaman að vera með heimaprjónaða trefla í Dockers litunum…. Það er leikur í kvöld en allar miðar voru sem sagt uppseldir svo ég verð að láta mér nægja að horfa á leikinn í sjónvarpinu og meðan á því stendur verð ég náttúrlega róleg og yfirveguð……..
Jeg har brug for mor nu, jeg ville så gjerne strikke nogen tørklæder med en bestem metode som jeg ikke ved hvad hedder på dansk. Jeg kan ikke huske hvordan man gør og for mig er det helt håbløst, at følge en opskrift. Jeg plejer at se mig selv som et tålmodigt, roligt og afbalanceret menneske! Jeg må dog indrømme når det kommer til håndarbejdsopskrifter eller brugsanvisninger til en computer så holder det billede ikke i det hele taget, da har jeg absolut INGEN tålmodighed. Jeg koger hvis jeg ikke med det samme forstår hvad jeg skal, siden exploderer jeg og giver op. Jeg må nok bare hekle de halstørklæder. Godt nok har Kim kommet hjem uden billetter de sidste to gange han er taget i byen for, at købe billeter til en kamp med Dockers, men jeg regner med, at før eller siden så lykkes det, at få tag i dem og da ville det være sjovt, at kunne overvære kampen iført hjemmestrikkede halstørklæder i Dockers farvene……. De spiller en kamp i aften og den må jeg så nøjes med, at se på fjernsynet og selvfølgelig kommer jeg til, at være rolig og afbalanceret……..

Permalink
11.05.10
Posted in Hverdagen at 9:02 pm by Ásdís
Fyrst þegar ég kom til Ástralíu áttaði ég mig alls ekki á árstíðunum en núna veit ég hvenær haustið heldur innreið sína, það er þegar það er orðið svo kalt að við náum í ofninn okkar út í skúr. Við tókum hann inn í fyrradag.
Dengang vi kom til Australien synes jeg det var svært, at finde ud af årstidene men nu ved jeg hvonår efteråret er her, det er når det er blevet så koldt, at vi henter varmeapparatet fra skuret. Vi tog det ind i forgårs.

Permalink
« Previous entries Next Page » Next Page »