25.04.10
Posted in Hverdagen at 1:03 pm by Ásdís
Jóhann er fjórtán ára í dag, til hamingju elsku strákurinn minn. Það er eiginlega örstutt síðan hann fæddist og samt er það svo óralangt síðan. Þessi er tekin 25. apríl 1996:
Johann er fjorten år i dag, til lykke min kære søn. Det er egentlig veldig kort tid siden han blev født og alligevel så længe siden. Denne blev taget 25. april 1996:

Og svo flugu árin….
Og siden fløj tiden….





…..hann byrjaði í skóla….
….han havde sin første skoledag…..

….og stækkaði og eldist…..
….og blev større og ældre…..


…og svo á sem sagt táningurinn minn 14 ára afmæli í dag.
…og så har altså min teenager sin 14 års fødselsdag i dag.


Permalink
24.04.10
Posted in Garður, Hverdagen at 7:43 pm by Ásdís
Ég vildi að ég gæti látið lyktina af rósunum mínum hérna á síðuna. Ilminn leggur um alla stofu.
Jeg ville ønske, at jeg kunne lægge duften af mine roser her på siden. Den forsøder luften i stuen.

Permalink
Posted in Náttúra at 12:50 pm by Ásdís
Jóhann er hálflasinn og illt í hálsinum en ég gat ekki annað en farið að hlæja, þegar hann sagði að honum findist mikið þægilegra að tala íslensku núna en dönsku út af hálsinum.
Johann er sløj og har ondt i halsen, men jeg måtte bare le da han fortalte, at han synes det er meget mere behageligt, at snakke islandsk nu fremfor dansk, på grund af halsen.

Permalink
22.04.10
Posted in Garður, Hverdagen at 5:47 pm by Ásdís

Það er víst sumardagurinn fyrsti á Íslandi í dag. Ég sendi bestu óskir um gleðilegt sumar heim til Íslands hérna frá öfugsnúnalandinu.
I dag er det den første dag i sommer på Island. Her fra omvendtland sender jeg de bedste ønsker til alle om at sommeren bliver god ved jer.
Permalink
16.04.10
Posted in Hverdagen at 2:47 pm by Ásdís
Ég hef búið í útlöndum í u.þ.b. 30 ár og fylgst mismunandi mikið með fréttum frá Íslandi, meira eftir að ég flutti hingað til Ástralíu en ég gerði áður og fór yfirleitt inn á mbl.is á hverjum degi. Ég hætti því algjörlega eftir að Davíð Oddsson varð ritstjóri, það gekk svo fram af mér að ég missti gjörsamlega alla trú á Morgunblaðinu. Ég var annars oft búin að monta mig oft af því við manninn minn, það væri nóg að fara þangað inn og þá fengi maður fréttir af því hvað væri að gerast í ÖLLUM heiminum, ólíkt fjölmiðlum á hinum norðurlöndunum sem voru með mikið þrengri sjóndeildarhring. Núna les ég fréttir á ruv.is, pressan.is og undanfarið á visir.is, því að þau hafa verið dugleg að koma með fréttir af gosinu.
Í morgun fór í inn á visir.is til að huga að gosinu og þar rakst ég á þessa frétt:
http://visir.is/article/20100415/FRETTIR01/977082413
Virðingarvert af mótmælendum að hætta þegar barnið birtist í dyrunum….. hmmmm, skrýtið að blaðamaðurinn skuli ekki vita hverju fólkið er að mótmæla…… verð að athuga hvort ég sé eitthvað um þetta annarsstaðar. Ég fór inn á ruv.is og fann þessa frétt:
http://www.ruv.is/frett/thorgerdur-segi-af-ser
Þau voru sem sagt að krefjast afsagnar Þorgerðar. Ég hef ekki fylgst nógu vel með og veit ekki hvað hennar hlutverk hefur verið í þessu öllu. Ég hef bara lesið brot og brot úr skýrslunni og er mjög ánægð með hvað hún virðist vera vel gerð. Á pressan.is fann ég svo þessa frétt:
http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/kristjan-arason-var-naest-launa–haestur-i-kaupthingi-fekk-24-milljonir-krona-i-manadarlaun
Þau hafa trúlega sameiginlegan efnahag hjónin en samt finnst mér vanta hvað Þorgerður gerði á þingi, líklega vita það allir sem búa á Íslandi og kannski bara “útlendingar” eins og ég sem erum þreytt á hálfkveðnum vísum og hálfkláruðum fréttum. Mér finnst sem sagt að maður þurfi að lesa fréttirnir á fleiri stöðum, fá brot hér og brot þar og samt finnst manni eins og maður sé engu nær. Ég verð líklega bara að lesa skýrsluna til að skilja hvað um er að vera, eða bara að láta mér nægja að fylgjast með gosfréttum og þá get ég í rauninni farið inn á ástrálska abc, því það er aðalfréttin þar núna.
PS. Ég hef ekki fylgst nógu vel með þjóðmálum á Íslandi en einhvernveginn get ég alveg ímyndað mér að eigendur visir.is séu kannski fólk sem minnst er á í skýrslunni.
PS.PS. Ég yrði þakklát ef einhver gæti bent mér á hvar ég get lesið fréttir frá Íslandi og nokkurnveginn stólað á að þar sé dregin upp sönn heildarmynd.
Permalink
14.04.10
Posted in Náttúra at 1:06 pm by Ásdís
Í gærmorgun fór ég í kalda sturtu, það er nefnilega komið haust svo sólskinið nær ekki lengur að hita upp vatnið eins og það hefur gert lengi. Eftir þetta hrollvekjandi bað mitt stillti Kim yfir á rarmagnshitarann, hann tekur við ef það er ekki nóg sólskin til að hita vatnið. Það rigndi meira og minna í gær og er spáð rigningu það sem eftir er vikunnar. Það var gott að koma út í gærmorgun og finna lyktina af rigningunni, það er eins og það hafi verið gerð stórhreingerning í náttúrinni. Hausthreingerning.
I gårmorges tog jeg et koldt brusebad. Det var ikke med min gode vilje, vi havde bare ikke noget varmt vand. Efteråret er her nemlig og solskinnet kan ikke længere nå, at varme op vandet som det har gjort længe. Efter min korte gåsehudstur under bruseren stillede Kim over på den electriske varmer, den overtager når det ikke er nok solskin for, at varme vandet. Der regnede det meste af dagen i går og i vejrudsigten spår de regn resten af ugen. Det var dejligt, at komme ud i gårmoges og lugte regnen. Det virkede som om man havde haft gang i en hovedrengøring i naturen. Efterårsrengøring.
Þessi tölvupóstur var sendur í vinnunni í gær:
Denne e-mail blev send rundt på arbejde i går:
Severe Weather Alert
All Staff – please note the severe weather warning below and the suggestions from the State Emergency Service in staying safe and keeping belongings secure. The warnings, at this time, are for this afternoon and this evening. If your area experienced storm or water damage in the recent Perth storm, please consider whether you need to pack away any loose papers or equipment. Please take care on the roads.
Warning from Bureau of Meterology:
TOP PRIORITY FOR IMMEDIATE BROADCAST
SEVERE WEATHER WARNING
FESA State Emergency Service [SES] advises people to secure loose objects, move vehicles under cover and stay inside away from windows. If caught outside find shelter away from trees, powerlines, storm water drains and streams. Take extra care on the roads as flooding is possible. If driving through heavy rain slow down and turn your lights on or if visibility becomes low pull over and park until it passes.
Við vorum að tala um það hérna heima að líklega þyrftum við bráðum að fara taka gasofninn okkar inn í stofu aftur. Eins og er lét ég nægja að grafa upp inniskóna.
Herhjemme snakkede vi om at vi nok snart må tage vores gasradiator ind i stuen igen. Lige nu nøjedes jeg med, at finde frem mine hjemmesko.

Permalink
13.04.10
Posted in Hverdagen at 8:56 pm by Ásdís
Anna, Vance og Grant voru hjá okkur um helgina og lögðu af stað í ferðalag í morgun. Carol var hérna með okkur á laugardagskvöldið til að óska þeim góðrar ferðar, henni fannst alveg ægilega gaman að opna flösku með korktappa. Ástralarnir eru svo óhátíðlegir að flestar vínflöskur eru með skrúfutappa.
Á morgun verða þau í Kalgoorlie þar sem Vance og sonur hans byrja að leika golf á lengsta golfvelli heims.
Anna, Vance og Grant var hos os i weekenden. I morges tog de af sted på en lang tur. Carol var her med os lørdagaften for, at ønske dem en god tur. Hun syntes det var rigtig sjovt, at åbne en vinflaske med korkprop. Australarner er ligeglade med sådan nogen finesser, det fleste vinflasker her har et skrugelåg.
I morgen er de i Kalgoorlie hvor Vance og hans søn begynder, at spille golf på verdens længste golfbane!
http://www.nullarborlinks.com/

Permalink
Posted in Hverdagen at 8:08 pm by Ásdís

Ég sá minn fyrsta ástralska fótboltaleik á sunnudaginn var og þvílík skemmtun. Ég hefði aldre getað ímyndað mér að það gæti verið svona skemmtilegt að horfa á “footi game”. Stemningin var alveg stórkostleg og ég var bæði hás og með sára lófa eftir leikinn. Ég hef verið svolítið veik fyrir Fremantle liðinu síðan við komum hingað en í fyrra var ægilega erfitt að halda með þeim, þeir voru svo lélegir. Núna hafa þeir hinsvegar byrjað mjög vel og ég er ákveðin í að halda með þeim – allavega út önnina. Ég keypti mér meira segja hatt.
I søndags så jeg min første australske fotballkamp. Det var utrolig sjovt og meget morsommere end jeg i forvejen ville have troet. Stemningen var helt fantasktisk og jeg var både hæs og havde ømme håndflader efter “footi” kampen. Jeg har haft en vis svaghed for Fremantle klubben siden vi kom til Australia, men det var meget vanskeligt, at holde med dem sidste år, de var så dårlige. Nu har de begyndt sesongen virkelig godt så jeg har besluttet mig for, at holde med dem – hele sesongen. Jeg har til og med købt en kasket.

http://bigpondvideo.com/FremantleTV/255315
http://www.fremantlefc.com.au/
Permalink
07.04.10
Posted in Hverdagen at 9:29 pm by Ásdís
Hjertelig tillykke med fødselsdagen min kære ægtemand!

Efter vejret, at dømme så må du have opført dig helt eksemplarisk det sidste år.

Við fórum í göngutúr í John Forrest Nationalpark.
Vi gik en tur i John Forrest Nationalpark.

Davíð kom svo og borðaði með okkur í kvöld.
David kom så og spiste med os i aften.

Permalink
06.04.10
Posted in Náttúra at 12:57 pm by Ásdís
Anna er af úkraínskum ættum og hún hefur komið færandi hendi undanfarna páska svo núna eigum við smá safn af úkraínskum páskaeggjum. Það eru konur frá Úkraínu sem búa hérna í Perth sem mála þessi egg. Þetta eru venjuleg hænuegg sem þær mála svona!
Annas far kommer fra Ukranien og de sidste par påske har hun foræret os nogle påskeæg så nu har vi en lille samling ukrainske påskeæg. Der er nogle damer fra Ukranien som bor her i Perth og de har malet helt almindelig hønseæg på denne måde!

Permalink
« Previous entries Next Page » Next Page »