31.03.10
Posted in Hverdagen at 1:21 pm by Ásdís

Ég var að koma frá sérfræðingi í augnlækningum, eina ferðina enn lenti ég á lækni sem hlustar ekki og tekur ekki mark á því sem maður segir. Ég er engu nær, það virtist mikilvægast fyrir hann að sannfæra mig um að sérfræðingurinn sem skoðaði mig síðast hafi haft rangt fyrir sér. Ég var þarna í u.þ.b. tvo tíma og ætli við höfum ekki verið svona um tuttugu “sjúklingar” sem komum þarna á færibandi. Þetta getur ekki verið skemmtileg vinna en hún gefur vel af sér.
Jeg har lige været hos en øjespecialist. En gang til traf jeg en læge som ikke lytter eller tror på hvad jeg siger. Jeg er ikke klogere efter besøget, det virkede som om det vigtigste for ham var, at overbevise mig om at specialisten som så mig sidst tog fejl. Jeg var der i omkring to timer og vi var sikkert omkring 20 “patienter” som rullede ind på bånd. Det kan ikke være et morsomt arbejde, men han tjener godt.

Permalink
28.03.10
Posted in Garður, Hverdagen at 4:16 pm by Ásdís
Líður helgin hraðar en aðrir dagar? Mér finnst föstudagurinn nýkominn og nú er langt liðið á sunnudaginn, skil eiginlega ekki hvernig þetta gerðist. Verð að rifja upp hvað ég gerði til að fá þetta til að passa.
Går weekenden hurtigere end andre dage? Jeg synes fredagen lige er kommet og nu er det allerede langt ude på søndagen, forstår ikke helt hvordan det skete. Jeg må prøve, at huske hvad jeg egentlig har lavet for at få det til, at stemme.
Táningurinn minn vex eiginlega alveg jafnhratt og helgin líður svo við skruppum til Morley og keyptum á hann skó.
Min yngste søn vokser næsten lige så hurtigt som weekenden går så vi tog til Morley og købte nye sko til ham.

Við fórum í bíó í leiðinni og þegar við komum út var farið að kvölda, flestir bílarnir horfnir af bílastæðinu en óendanlega margar innkaupakerrur sem höfðu verið skildar eftir.
Vi tog også i biografen så da vi kom ud var der tidlig aften og næsten alle biler var forsvundet fra parkeringspladsen, men vi så utrolig mange forladte inkøbsvogne.

Himininn var fallegur þegar við keyrðum heim…..
Vi kørte hjem under en smuk himmel……

….en hann var ennþá fallegri í fyrrakvöld.
….men den var endnu smukker fredagaften.

Í dag var ég í garðinum, ég veit eiginlega ekki af hverju ég fer ekki oftar út í garð að vinna, það er endurnæring fyrir bæði sál og líkama, jú, líklega er það af því að það hefur verið alltof heitt. Nú held ég að hitinn hafi ekki farið upp í meira en 28 gráður.
I dag har jeg arbejdet i haven, jeg ved egentlig ikke hvorfor jeg ikke gør det lidt oftere, det er en lise både for sjæl og krop. Jo, det er højst sandsynlig på grund af, at det har været altfor varmt. Jeg tror ikke varmen kom over 28 grader i dag.

Permalink
24.03.10
Posted in Náttúra at 10:41 pm by Ásdís

Jeg så dette flotte billede fra vulkanudbruddet i Island på visir.is, måtte bare lægge det ud her for dem som måske ikke følger så godt med i nyheder fra Island.
Permalink
Posted in Náttúra at 3:24 pm by Ásdís
“Be careful what you wish for.”
Ég man ekki hvort maður segir eitthvað álíka á íslensku. Það hefur varla komið dropi úr lofti í fjóra mánuði og ég er búin að vera vonast eftir rigningu lengi, hún kom á mánudaginn var. Ég var að fara úr vinnunni og ný sest upp í bílinn þegar það hvessti svakalega og haglélið dundi, síðan byrjaði að rigna. Ég hugsaði með mér að ég væri nú svolítið móðursjúk þegar ég var hrædd um að haglið myndi brjóta rúðuna í bílnum. Daginn eftir sagði einn vinnufélagi minn að rúða hefði brotnað í hennar bíl og svo sá ég fréttunum að það höfðu margir upplifað það sama.
Jeg kan ikke huske om man siger noget lignende på dansk. Det har ikke regnet her i fire måneder så jeg har længe håbet på regn og det kom i mandags. Jeg var på vej fra arbejde og havde lige sat mig ind i bilen da de begyndte, at storme og hagle rundt mig og siden begyndte det, at regne. Jeg tænkte at jeg nok var lidt hysterisk da jeg var bange for at haglvejret ville slå ruden i bilen i stykker. Dagen eftr fortalte en af mine kolleger, at det var netop det som var sket med hende, jeg læste i nyhederne at der var mange flere som havde oplevet det samme.
http://player.video.news.com.au/theaustralian/#_IO6vOxUX6_e0ApzKA7kJWb_NEZBFYId
Nú skín sólin en maður sér verksummerki allsstaðar þar sem maður kemur, það er eins og það hafi rignt laufblöðum og greinum og sumsstaðar eru umferðarljósin ekki komin í samband aftur svo maður verður að keyra varlega.
Nu skinner solen igen men man kan se spor efter uvejret alla vegne, det ser ud som om det har regnet blade og grene over det hele. Nogle steder er trafiklysene stadigvæk i stykker og man må køre forsigtig.
http://au.news.yahoo.com/thewest/a/-/wa/6969908/storm-hit-city-a-natural-disaster-zone/
Það versta er að þó að það hafi rignt svona mikið þá var ósköp lítið gagn af rigningunni. Það rigndi með þvílíkum krafti að lítið náði að síga niður í jörðina, þetta flaut allt saman burt og á fleiri stöðum voru vegirnir eins og ár.
Det værste er, at selvom det har regnet så meget så har det ikke været til meget gavn. Regnet kom med så stor kraft, at meget lidt nåede ned i jorden, det meste flød væk. Flere steder lignede vejene rinnende åer.
Permalink
20.03.10
Posted in Garður, Hverdagen at 9:53 pm by Ásdís
Kim fór til Danmerkur í gær, ég heyrði í honum áðan og hann var kominn á leiðarenda. Ferðataskan hans kom hinsvegar ekki með honum svo hann er búinn að ganga um í dönskum vetri á stutterma skyrtu.
Kim tog af sted til Danmark i går, jeg har lige hørt fra ham og han var kommet godt frem. Desværre kom hans kuffort ikke sammen med ham så han måtte rejse gennem København i en kortærmet skjorte.

Eitt af því síðasta sem hann gerði áður en hann fór í flugið var að klippa blóm af einu pálmatrénu. Ég var ánægð með að sleppa við að fá þetta allt í laugina.
Et af det sidste han gjorde før han tog flyet var, at klippe blomsten af en af palmeren. Jeg var meget tilfreds med det så slipper vi, at få det i poolen.

Einu nágrannirnar sem ég tala við eru að flytja, það kom stór bíll í eldsnemma morgun og sótti þau…. það verður mikil eftirsjá af þeim.
De eneste naboer jeg snakker med flytter, tidlig i morges kom der en stor bil og hentede dem… jeg kommer til, at savne dem.

Það er komið kvöld og kolniðamyrkur en ég fór út í garð og tók nokkrar myndir þegar sólin var að setjast.
Det er aften nu og bælgmørkt, men sådan så det ud tidligere da solen var ved, at gå ned.


Nú held ég að ég fari að koma mér í rúmið með bók að lesa.
Nu tror jeg, at jeg går i seng med en god bog.
http://www.youtube.com/watch?v=F_jyXJTlrH0&NR=1
Permalink
14.03.10
Posted in Garður, Hverdagen at 6:37 pm by Ásdís
Það hefur ekki ringt ennþá en það er nú hægt að njóta dagsins fyrir því. Það er ekki amalegt að vakna við kvakið í Magpæjunum.
Det har ikke regnet endnu, men det går fint an, at nyde dagen alligevel. Det er ikke dårligt, at vågne ved lyden i Magpierne.
http://www.listeningearth.com.au/blog/a-madrigal-of-magpies
Mér er meira segja farið að þykja hljóðin í hröfnunum notaleg – svona öðru hvoru.
Jeg synes til og med lydene i ravnene kan var hyggelige – indimellem.
http://www.youtube.com/watch?v=t6_cf4IQ6fA
Svo er bara að koma sér út í garð og ég dag var ekki of heitt, ég held að hitinn hafi farið upp í 31 stig.
Så er det bare, at komme sig ud i haven. I dag var det ikke for varmt, jeg tror varmen var oppe på 31 grader.

Mangóinn er á tré ítalska nágranna okkar en við eigum hann. Hann sagði að hann vær merktur okkur og við bíðum bara eftir að hann þroskist.
Mangoen vokser på vores italienske nabos træ, men den er vores. Han har sagt, at det står vores navn på den så nu venter vi bare på at den bliver moden.

Permalink
13.03.10
Posted in Hverdagen at 7:46 pm by Ásdís
Það er alltaf óþægilegt að lesa um þessa elda og ennþá verra þegar maður hefur verið á þeim stöðum þar sem brennur. Vonandi fer þetta vel.
Det er altid ubehageligt, at læse om disse brande og endnu værre når man har været på de steder det brænder. Forhåbentlig når de at slukke den snart.
http://www.abc.net.au/news/stories/2010/03/13/2844991.htm
Permalink
Posted in Hverdagen, Náttúra at 4:52 pm by Ásdís

Það var búið að spá rigningarskúrum í dag – ég er enn að bíða.
De sagde det var udsigt til regnbyger i dag – jeg venter stadigvæk.
Permalink
11.03.10
Posted in Hverdagen at 11:09 pm by Ásdís
Klukkan er rúmlega ellefu að kvöldi til, ég er á leiðinni í rúmið og hitmælirinn sýnir að það er 29,7 stiga hiti úti!
Klokken er lidt over elleve om aftenen, jeg er på vej i seng og termometeret viser, at det er 29,7 graders varme udenfor!
Permalink
01.03.10
Posted in Dýralíf, Hverdagen, Náttúra at 8:35 pm by Ásdís
Það er frídagur hérna í Vestur Ástralíu í dag, Labour Day. Eini munurinn hjá okkur er að Jóhann fór ekki í skólann, við Kim hefðum bæði verið heima hvort eð er. Daníel og Vibeke lögðu af stað til Osló í gær og eru trúlega að verða komin heim núna. Við fórum í dýragarðinn á laugardaginn í ógurlegum hita. Einn starfsmaðurinn í dýragarðinum varaði okkur við kengúrunum, þær voru svo æstar og stressaðar út af hitanum að þær höfðu víst hoppað stjórnlaust fram og aftur á svæðinu þar sem þær eru og það er ekki skemmtilegt að vera fyrir þeim þegar þær koma hoppandi á fullri ferð í hóp. Ég hélt nú að kengúrur væru vanar hita en það er af því að það hefur verið svo rakt undanfarið, þá finnur maður meira fyrir honum. Allavega virðast kengúrurnar gera það. Heyrði í fréttunum að þetta hefur verið heitasta sumar í Vestur Ástralíu síðan mælingar hófust, skrýtið, mér finnst að sumarið í fyrra hafi verið ennþá heitara, kannski ég sé að venjast þessu.
I dag er der fridag her i Vest-Australien, Labour Day. Den eneste forskel det gør hos os er, at Johann ikke skulle i skole. Kim og jeg ville alligevel have været hjemme. Daniel og Vibeke rejste tilbage til Oslo i går og er nok snart hjemme. Vi var i Perth Zoo i lørdags i varmen. En ansat i haven advarede os imod kænguruerne, de var stressede og ophidsede på grund af varmen. De havde vist hoppet heldt vildt i flok frem og tilbage på det område de har. Det er nok ikke morsomt, at komme i vejen for en gruppe hoppende kænguruer. Jeg troede at de var vandt til varmen, men det har været så fuktigt på det sidste at man mærker den meget mere, i hvert fald ser det ud til, at kænguruerne gør det. Jeg hørte på nyhederne, at dette har været den varmeste sommer i Vest Australien siden man begyndte, at måle. Jeg synes egentlig at sommeren sidste år var varmere, måske er jeg bare ved, at blive vandt til varmen.
http://www.auspublicholidays.com/labour-day/2010
Við sáum numbat, ekki í búrinu þar sem þeir áttu að vera heldur á gangstígnum. Ég var nú fegin að wombatinn var inni í sinni girðingu, mér fannst hann einna helst líkjast einhverri risakanínu með stutt eyru.
Vi så en Numbat, men ikke i buret hvor de skulle være men ude på stierne. Jeg er glad for at Wombat holdt sig i sin indhegning. Jeg synes den mindede om en eller anden kæmpe kanin, med korte ører.
http://en.wikipedia.org/wiki/Wombat

Flest dýranna héldu sig í skugga og margir fuglanna stóðu hreyfingarlausir með opinn gogg.
De fleste dyr holdt sig i skyggen og mange af fuglene stod helt stille med næbbet åbent.

Risaskjaldbökurnar kepptust um að komast niður í leðjuna til að kæla sig.
Kæmpeskildpadderne løb nærmest om kap for at komme til, at køle sig ned i mudderet.

Það var nú samt bara gaman þrátt fyrir hitann. Þá á eftir að verða tómlegt í húsinu þegar við erum búin að átta okkur á að Daníel og Vibeke eru farin…..
Det var alligevel sjovt på trods af varmen. Det kommer til, at føles tomt i huset når det går op for os, at Daniel og Vibeke faktisk er rejst……

…við vorum að heiman í dag, fórum á ströndina við Two Rocks.
…vi var ikke hjemme i dag, tog til stranden ved Two Rocks.

Permalink