28.01.10

Ströndin / Stranden

Posted in Hverdagen at 8:53 pm by Ásdís

Við fórum á Cottesloe Beach í dag. Ég hef ekki komið þangað áður, öldurnar berja ekki eins hart á ströndinni þar eins og alls staðar annarsstaðar hérna við Perth. Það var mikið fleira fólk á ströndinni heldur en maður er vanur hérna, þar sem maður oft hefur strendurnar bara út af fyrir sig.

I dag tog vi til Cottesloe Beach. Jeg har ikke været der før. Bølgerne slog ikke så hårdt mod stranden som man er vant til at de gør her på vestsiden. Der var også mange flere mennesker på stranden end jeg har oplevet før, hvor man ofte har hele stranden for sig selv.

http://en.wikipedia.org/wiki/Cottesloe_Beach

26.01.10

Sommer og sol

Posted in Hverdagen at 6:08 pm by Ásdís

Það hefur sína góðu hliðar að Kim er atvinnulaus, það gerist heilmikið í garðinum.

Det har sine fordele, at Kim er uden arbejde. Det sker f.eks. en masse i haven.

Annars er bara um að gera að njóta þess að það er sumar og sólskin.

Ellers er det bare om at nyde sommeren og solskinnet.

25.01.10

Draumur / En drøm

Posted in Hverdagen at 10:05 pm by Ásdís

Ég vaknaði alveg eldsnemma í morgun og fór fram og kveikti á loftkælingunni í þessari óþolandi mollu, svo fór ég að sofa aftur. Mig dreymdi að við værum flutt til Íslands og var að velta því fyrir mér í draumnum af hverju við hefðum flutt úr öllu þessu sólskini og hlýju í þetta illviðri og djöf…. kulda. Ég vaknaði við kuldann, breyddi ofan á mig sængina og hélt áfram að sofa.

Jeg vågnede grytidlig i morges og stod op for, at tænde airconditionen for at få lidt frisk luft. Siden gik jeg i seng igen og faldt i søvn. Jeg drømte, at vi var flyttet til Island og spekulerede i drømmen over hvorfor i alverden vi var flyttet væk fra alt det solskin og varme til det møgvær og isnende kulde. Jeg vågnede ved kulden, trak dynen over mig og fortsatte med, at sove.

24.01.10

Björgunaraðgerðir / En redningsaktion

Posted in Dýralíf, Hverdagen at 8:11 pm by Ásdís

Daníel og Vibeke björguðu þessari agnarsmáu eðlu frá drukknun í sundlauginni í dag. Það er svo skrýtið hvernig manni finnst sum dýr bara lítil og krúttleg og önnur ógeðsleg. Litlar eðlur eru bara sætar!

Daniel og Vibeke reddede dette lille firben fra druknedøde i vores pool. Det er mærkeligt hvordan man synes nogle dyr er bare søde og nuttede og andre ret modbydelige. Firben er helt klart nuttede!

23.01.10

Í lausu lofti / I den løse luft

Posted in Hverdagen at 4:36 pm by Ásdís

Við erum svolítið í lausu lofti hérna eina ferðina enn. Kim missti vinnuna í síðustu viku, “engineer” hlutinn af vinnustaðnum var lagður niður og þeir síðustu látnir fara. Síðasti dagurinn hjá Kim í hans vinnu var fyrsti dagurinn hjá mér í nýrri vinnu. Það er heldur ekki nærri nóg að gera hjá mér, u.þ.b. einn kúnni á dag, ég átti von á að það yrði mikið meira. Það var ein af ástæðunum fyrir að ég vildi vinna á stofu hjá öðrum sálfræðingi, stofan sér um allar bókanir.
Þetta er samt allt annað núna þegar við erum komin með dvalarleyfi, nú verður okkar ekki sparkað úr landi eftir mánuðinn og getum hugsað okkar mál í ró og næði.

Vi hænger lidt i den løse luft engang til. Kim mistede arbejdet i sidste uge, ingeniør delen blev nedlagt og de sidste blev sagt op. Den sidste dag på Kims arbejde var den første dag hos mig i nyt abejde. Jeg har altfor lidt, at lave, en person per dag i steder for c.a. seks som jeg var belvet forespejlet (jeg får betalt per kunde). Det var faktisk en af grundene at jeg ville starte i en etablered praksis, de sørger for al booking.
Det er alligevel en helt anden situation nu, efter at vi fik opholdstilladelsen, nu bliver vi ikke smidt ud af landet indenfor en måned, vi kan stille og roligt arbejde på, at finde en løsning.

22.01.10

Paella

Posted in Hverdagen at 12:51 am by Ásdís

Vibeke sá um kvöldmatinn í kvöld. Hún bjó til paella sem hún hefur aldrei gert áður, hún leit ekki bara vel út heldur var mjög bragðgóð líka.

Vibeke stod for aftensmaden i aften. Hun lavede paella som hun aldrig har lavet før. Den så ikke bare godt ud, den smagte også rigtig godt.

16.01.10

“An easy walk”

Posted in Náttúra at 1:47 pm by Ásdís

Við keyptum bókina “100 Walks in Tasmania” og vorum ánægð að finna þar gönguleið við Cradle Mountain sem við vorum búin að ákveða að fara til. Þar var mjög fallegt eins og næstum allsstaðar í Tasmaníu en það var laveg skítkalt og peysurnar sem mamma prjónaði handa strákunum og gaf þeim í jólagjöf komu sér aldeilis vel.

I Tasmanien købte vi bogen “100 Walks in Tasmania” og var glade for, at finde en gåtur ved Cradle Mountain som vi havde bestemt os for, at tage til. Der var det meget smukt som de fleste steder i Tasmanien. Det var også rigtig koldt så trøjerne min mor strikkede og gav drengene i julegave var rigtig gode have.

Leiðin var merkt “easy walk” í bókinni, ég býð þá ekki alveg í “hard walk”, það er langt síðan ég hef lent í annarri eins fjallgöngu – …..

Turen var katagoriseret som “easy walk” i bogen, jeg gad vide hvordan “hard walk” er, det er lange siden jeg har været ude på en lignende klatretur – …..

…en hún var þess virði.

…men den var det værdt.

14.01.10

Regnskógurinn / Regnskoven

Posted in Náttúra at 11:43 am by Ásdís

Við gengum í regnskógi á tveimur mismunandi stöðum í Tasmaníu. Það er skrýtin tilfinning að vera í svona skógi, burknarnir vaxa þarna sem tré og maður á hálfpartinn von á að rekast á risaeðlu á milli trjánna.

Vi gik ind i regnskoven to forskellige steder på Tasmanien. Det var en mærkelig følelse, at gå rundt der, bregnerne vokser som træer og man næsten forventer, at støde ind i en dynosaurus mellem træerne.

13.01.10

Bay of Fires

Posted in Hverdagen, Náttúra at 11:38 am by Ásdís

Kim var búinn að lesa það einhversstaðar að ströndin við Bay of Fires hafði verið útnefnd sem önnur besta strönd í heimi. Bay of Fires er mjög stór og við komum seint eftir að hafa keyrt eftir krókóttum vegum sem taka mikið lengri tíma en það sem við héldum miðað við vegalengdina, þannig að við komum bara á suðurhlutann. Reyndar var einn af vinnifélögum Davíðs sem er frá Tasmaníu búinn að segja honum að maður mætti reikna með að það tæki um 5 tíma að keyra 200 km vegalengd. Hann hafði rétt fyrir sér!
Sandurinn var eins fínlegur og sykur og það er ábyggilega gott að synda í sjónum, þegar það er nógu hlýtt en mér finnst alveg jafnfallegar strendur hérna í Vestur Ástralíu.

Kim havde læst det et eller andet sted, at stranden ved Bay of Fires var blevet udnævnt som den anden bedste strand i hele verden. Bay of Fires er stor og vi ankom sent efter, at have kørt ad snoede veje hvor det tager meget længere tid end afstanden ville tilsige så vi var bare på den sydligste del. Godt nok havde en af Davids arbejdskamerater som kommer fra Tasmanien fortalt ham, at han skulle regne med bruge 5 timer på, at køre 200 km. Han havde ret!
Sandet var finkornet som sukker og det er sikkert rigtig dejligt, at svømme i havet når det er varmt nok, men jeg synes det findes lige så smukke strender her i Vest Australien.

http://en.wikipedia.org/wiki/Bay_of_Fires,_Tasmania

Strákarnir mínir / Mine dejlige drenge

Posted in Hverdagen at 8:34 am by Ásdís

« Previous entries Next Page » Next Page »