16.10.09
Posted in Garður, Hverdagen at 10:34 pm by Ásdís
Hitinn fór upp í 33 stig í dag. Þetta er aldeilis búið að snúast við, ég þurfti að loka gluggunum svo það yrði ekki of heitt inni!
I dag var varmen oppe på 33 grader. Det er helt omvendt nu, jeg måtte lukke vinduerne for, at holde varmen ude!

Permalink
11.10.09
Posted in Dýralíf, Hverdagen at 1:03 pm by Ásdís
Þetta er nú svolítið afturábak en fyrst ég er nú komin í gang þá tek ég með myndir sem ég tók í síðustu viku í vinnunni. Ég var á leiðinni í vinnunna og sá svæði sem var afgirt með svona borðum eins og lögreglan notar til að girða af svæði þar sem afbrot hefur verið framið. Á meðan ég nálgaðist svæðið var ég að hugsa hvað hefði eiginlega gerst. Ég hefði aldrei getað giskað á þetta……
Det her er nu lidt baglængs, men siden jeg nu er så godt i gang med at skrive, tilfjøjer jeg nogle billeder jeg tog på mit arbejde i sidste uge. Da jeg var på vej til arbejde så jeg, at der var et område som var hegnet ind med sådan nogen bånd som politiet bruger for, at indhegne et sted hvor der er blevet begået en forbrydelse. Idet jeg nærmede mig området tænkte jeg på hvad der egentilg var sket. Jeg kunne aldrig have gættet mig til det her…


Permalink
Posted in Hverdagen at 12:39 pm by Ásdís
Við Jóhann fórum í bæinn á föstudaginn, við byrjuðum á því að borða hádegismat með Kim á stað sem heitir Streeton´s Licenced Café, ég skrifa nafnið til að muna að fara þangað aldrei aftur. Það er satt sem Kim sagði þetta minnti á “Fawlty Towers”. Dæmi um það var þegar Kim og síðan Jóhann voru loksins búnir að fá það sem þeir pöntuðu leið og beið og ekkert meira gerðist. Ég var búin að sjá hvernig þjónustan var við hin borðin svo ég hugsaði með mér að það þýddi ekkert að vera að reka á eftir þeim en svo gafst ég upp og fór og spurðist fyrir um risottóið mitt, hún svaraði eins og ekkert vær sjálfsagðara að það væri verið að elda það, “chef cooking”. Þegar það loksins kom leit það vægast sagt ekki vel út, það bragðaðist ágætlega og ég huggaði mig við að það líktist bara hafragraut en þegar Kim sagði að það minnti hann á veggfóðurslím, þá missti ég lystina.
Johann og mig tog til byen i fredags og begyndte med at spise frokost sammen med Kim på et sted som hedder Streeton’s Licenced Cafè. Jeg skiver navnet for, at huske at aldrig går der igen. Det er rigtig som Kim sagde, stedet mindede om “Fawlty Towers”. Et godt exempel på det var da Kim og siden Johann langt om længe havde fået det de bestilte skete der ingenting mere. Jeg ventede og ventede, jeg havde set hvordan servicen var ved de andre bord så jeg regnede ikke med, at det ville hjælpe noget at rykke for min risotto, men endelig gav jeg op og gik op til disken for, at spørge om den. Hun svarede som det var en selvfølgelighed, at den var ved at blive lavet, “chef cooking”. Da den endelig kom så den ikke godt ud, den smagte udmærket så jeg trøstede mig med, at den lignede bare havregrød, men da Kim fortalte at den minded ham om tapetklister, mistede jeg ligesom appetiten.

Við Jóhann fórum inn í hattabúð sem varð á vegi okkar og Jóhann fékk hattinn sem honum leist best á í búðinni.
Johann og mig gik ind i en hattebutik og Johann fik den hat som han syntes bedst om i butikken.

Afganginum af deginum eyddum við í Western Australia Museum. Þar er ótrúlega margt að sjá og hægt að eyða fleiri, fleiri klukkutímum þar ef að maður vill. Sagnið er einskonar þjóðminjasafn, náttúrugripasafn og listasafn, allt í einum hrærigraut. Þetta er safn sem er gaman að skoða.
Resten af dagen brugte vi på Western Australia Museum. Der er der bare alt muligt at se og jeg kan ikke se at de begrænser sig på noget måder, det er en blanding af historisk, natur og kunst museum i en gebommerlig blanding. Det er et sjovt museum at besøge.

Þetta er það næsta sem við höfum komist því að að sjá Cane toad…
Det er det nærmeste vi er kommet en Cane toad…

..og við sáum stærsta gull”mola” sem hefur fundist í Vestur Ástralíu.
..og vi så den største guldklump sem er blevet fundet i Vest Australien.

Við sáum beinagrindur af bæði hákörlum og risaeðlum…
Vi så skeletterne af både hajer og dynosauruser….

..og uppstoppuð dýr.
..og udstoppede dyr.

Batteríið kláraðist í myndavélinni svo það voru engar myndir teknar af öllum fallegu þurrkuðu fiðrildunum, eða öllum stórkostlegu steinunum, eða …… ég tók eina mynd í safninu um sögu frumbyggjanna….
Batteried i fotografiapparatet løb tør så jeg fik ikke taget nogen billeder af alle de farverige sommerfugle, eller det fantastisk flotte sten, eller….. jeg tog et billede i samlingen om Aborigenernes historie….

…til að minna á hvað hláturinn er mikils virði.
…for at minde om hvor meget latteren er værd.
Permalink
10.10.09
Posted in Hverdagen, Náttúra at 10:56 pm by Ásdís
Kim og Davíð héldu áfram á kafaranámskeiðinu í dag. Þeir köfuðu í Swan River einhvernsstaðar austan við Fremantle. Þeir segjast hafa farið niður á 12 metra dýpi, ég vissi ekki að áin væri svo djúp. Þeir komu heim með fullan poka af kræklingum sem strax var farið að hreinsa og matreiða.
I dag fortsatte Kim og David med dykkerkursuset. De dykkede i Swan River et eller andet sted i øst for Fremantle. De siger at de har være nede på 12 meters dybte, jeg anede ikke, at elven var så dyb. De kom hjem med en full pose muslinger de havde plukket ( man siger vel ikke fanget om muslinger) og begyndte med det samme at rense og tilberede.



Permalink
06.10.09
Posted in Hverdagen at 8:50 pm by Ásdís
Hérna er fleira og fleira sem bendir til þess að von sé á sumrinu. Það er búið að vera mjög hlýtt í tvo daga, maður verður ekki mikið var við það í vinnunni í loftkælingunni en við fengum okkur allavega sumareftirrétt í kvöld.
Her er der mere og mere som tyder på at sommeren står for døren. Der har været rigtig varmt i to dage nu selvom man ikke rigtig lægger mærke til det i luftafkølingen på arbjede. Herhjemme fik vi sommerdessert til aften.

Eftir matinn var svo heimalærdómurinn sem tók við. Jóhann er reyndar í haustfríi en Davíð og Kim eru á köfunarnámskeiði og þurfa að læra heima fyrir próf um næstu helgi. Þeir voru á námskeiði bæði laugardag og sunnudag um síðustu helgi og fara svo aftur báða dagana um næstu helgi.
Efter aftensmaden var der så hjemmelektierne som måtte gøres. Johann har godt nok efterårsferie fra skolen men David og Kim er på et dykkerkursus og måtte forberede sig for en prøve næste weekend. De var på kursus lørdag og søndag sidste weekend og skal igen begge dage næste weekend.

Ég er ekki á neinu námskeiði og get lesið krimma með góðri samvisku. Ég er nýbúin með “Luftkastellet der blev sprængt”. Það er svo dýrt að fá bækur sendar hingað til Ástralíu að það borgar sig ekki að panta bara eina bók svo það fengu þrjár aðrar að fljóta með.
Jeg er ikke på noet kursus så jeg kan med god samvittighed læse en krimi. Jeg er lige blevet færdig med “Luftkastellet der blev sprængt”. Det er så dyrt at få bøger tilsendt her til Australien så det kan slet ikke betale sig, at sende kun en bog, vi bestilte tre til i pakken.

Ég var að hengja út á snúru og ég verð nú að segja það að ég er ekki jafn ánægð með öll merki um það að sumarið sé á leiðinni!
Jeg har lige hængt ud vasketøjet og jeg må sige, at jeg ikke er lige tilfreds med alle tegn på sommer.

Permalink
01.10.09
Posted in Hverdagen at 11:25 am by Ásdís
Fra Politiken i går:

Permalink