31.08.09

Apaköttur / En abekat

Posted in Dýralíf at 11:35 am by Ásdís

http://www.youtube.com/watch?v=IALJXP8LaS4&feature=related

30.08.09

Bið og milliliðir / Ventetid og mellemænd

Posted in Hverdagen at 12:20 am by Ásdís

Við erum að bíða. Í nóvember í fyrra hringdi Kim í mig einn daginn um hádegi og sagðist vera búinn að missa vinnuna, það var nógu slæmt í sjálfu sér en það sem var verra að samkvæmt áströlskum lögum höfðum við fjórar vikur til að koma okkur úr landinu. Þetta af því að við erum með dvalarleyfi sem er háð atvinnuveitaenda Kims, “457 visa”. Fjórar vikur eru ekki langur tími til að selja hús, pakka öllu saman og finna út hvert við ættum að flytja o.s.frv. Sem betur fer fékk Kim aðra vinnu þar sem atvinnuveitandinn var tilbúinn til að skrifa upp á “457 visa” fyrir okkur svo við sluppum með skrekkinn.

Vi venter. I november sidste år ringede Kim til mig fra arbejde en dag og fortalte, at han havde mistet jobbet. Det var slemt nok i sig selv men det som var værre var, at i følge Australsk lov havde vi fire uger til, at komme os ud af landet. Dette på grund af at vi er her på opholdstilladelse som er afhængig af Kim arbejdsgiver, 457 visa. Fire uger er ikke lang tid når man både skal sælge hus, pakke det hele og prøve, at finde ud af hvor vi skal flytte til. Heldigvis fik Kim et andet arbejde hvor arbejdsgiveren var klar til, at “sponsere” et nyt 457 visa så vi slap med forskrækkelsen.

http://en.wikipedia.org/wiki/457_visa

Við ákváðum að gera allt til að lenda ekki í þessum aðstæðum aftur og sóttum um varanlegt dvalarleyfi.

Vi bestemte os for, at vi ikke ville havne i denne situation igen og søgte om permanent opholdstilladelse.

http://en.wikipedia.org/wiki/Australian_permanent_resident

Hérna í Vestur Ástralíu er ekkert í sambandi við pappíra auðvelt og oft þarf að fara í gegnum allskonar milliliði. Það er t.d. næstum ómögulegt að fara í banka til að fá lán, maður þarf að fara í gegnum fjármálaráðgjafa. Ég man ekki hvað það var eiginlega margt fók sem kom að kaupunum á húsinu okkar á þeim tíma, mér fannst það allavega vera heill hópur.
Við sóttum um dvalarleyfið í gegnum “immigration agent”:

Her i Vest Australien er der et forfærdelig bureaukrati og ofte skal man bruge nogen mellemled. F.eks. er det nærmest umuligt, at få et banklåan uden, at gå igennem en finans rådgiver. Jeg husker ikke hvor mange mennesker vi måtte arbejde med for at købe huset i sin tid, jeg husker det som om det var hen hel flok. Vi søgte om opholdtilladelsen via en “immigration agent”:

http://www.interstaff.com/advert/inner-job.php

- og það hefur tekið tímann sinn. Þau sögðu okkur til dæmis ekki að við þyrftum bæði að taka enskupróf svo ég bókaði mig ekki í próf um leið og Kim og komst ekki í próf fyrr en nokkrum mánuðum seinna. Loksins þegar allur pappírsbúnkinn var kominn inn var okkur sagt að það myndi taka 4-6 vikur þangað til við fengjum svar – nú eru liðnar 7 vikur.
Það hefur verið sama og ekkert að gera í vinnunni hjá Kim undanfarna tvo mánuði og þó að þeir segi hérna að þeir segi honum ekki upp fyrr en við erum búin að fá svar, þá treystum við ekki alveg á það. Höfuðstöðvarnar eru í London og endanleg ákvörðun um framtíð fyrirtækisins hérna verður tekin þar. Við erum búin að hafa það á tilfinningunni lengi að við séum í kapphlaupi við tímann….
Mér skilst að yfirvöld séu hætt að gefa út “457 visa” og það er að verða harðari samkeppni um allt, meira segja námsmenn eru farnir að eiga í vandræðum með vinnu með skóla.

- og det har taget sin tid. De fortalte os f. eks. ikke at vi begge to måtte tage en engelsk prøve så jeg bookede mig ikke til en prøve samtidig med Kim. Det betød at jeg måtte vente nogen måneder før jeg kunne kommt til prøven. Endelig når hele bunken med papirer var avleveret fortalte agenten, at det ville tage 4-6 uger til vi fik et svar – nu er der gået 7 uger.
Der har næsten ikke været noget, at lave på Kims arbejde det sidste par måneder og selvom de siger de vil ikke sige ham op før vi har fået svar så stoler vi ikke helt på det. Hovedkontoret er i London og i den sidste ende er det der beslutningen om firmaets fremtid her bliver taget. Vi føler at vi er i kapløb med tiden….
Jeg har hørt, at myndighederne har sluttet med at udstede 457 visa. Konukurancen er ved, at blive mere tøf alle steder og til og med de studerende har vanskeligt ved, at finde deltids arbejde.

http://www.abc.net.au/news/stories/2009/08/28/2670012.htm

28.08.09

Góður staður / Et godt sted

Posted in Hverdagen at 11:24 pm by Ásdís

Sjónvarpsherbergið okkar er bara allt annar staður eftir að við snerum öllu við. Kannski maður ætti að prófa þetta svolítið oftar að snú hlutunum við eða jafnvel á hvolf. Mér líkaði aldrei við þetta herbergi en ætli þetta endi ekki bara með að verða einn af uppáhaldsstöðunum mínum í húsinu.

Vores fjernsynsværelse er bare helt anderledes efter at vi vendte det hele om. Måske skulle man prøve det her lidt oftere, at vende tingene om og måske vende dem helt på hovedet. Jeg kunne aldrig lide værelse men nu tror jeg det ender med, at være en af mine ynglinssteder i huset.

24.08.09

Trigg Beach

Posted in Náttúra at 10:19 pm by Ásdís

Við fórum á strönd í gær þar sem við höfum ekki komið áður. Þetta er auðvitað allt sama strandlengjan og ég hélt að við hefðum þrætt alla ströndina hérna við Perth en við höfum aldrei komið á Trigg Beach áður.

Vi tog på stranden i går, et sted vi aldrig har været før. Strandene her hænger selvfølgelig sammen hele vejen og jeg troede at vi havde været på alle strandene ved Perth, men nej, vi har aldrig været på Trigg Beach før.

http://www.swiftcity.com/guides/australia/10/644.html

23.08.09

Heimsókn / Et besøg

Posted in Hverdagen, Náttúra at 1:35 pm by Ásdís

Nú er Susi farin aftur, það er búið að vera gott að fá svolítið fríska strauma frá Ameríkunni. Við erum búin að tala um alla heima og geima, bæði alvöru og gaman. Margar frásagnirnar hafa verið ótrúlega litríkar eins og þessi um hvítu öndina Tarzan sem var tekin með heim úr leikskólaferð og fékk að búa í garðinum og synda í sundlauginni. Við rákumst á frænda Tarzans hérna í nágrenninu.

Nu er Susi rejst igen, det har været rigitg godt med en frisk pust fra USA. Vi har haft mange gode samtaler og snakket om både alvorlige ting og mindre alvorlige ting. Mange af fortællingerne har været utrolige farverige, som den om den hvide and Tarzan som blev taget med hjem fra en børnehavetur og fik lov, at bo i baghaven og svømme i svømmepoolen. Vi stødte  på Tarsans slægtning her i nabolaget.

Skemmtileg var líka frásögnin um frú S. með allar hárkollurnar sem hafði verið ástkona konungsins. Ég skil alveg yfirmanninn í fyrirtækinu þar sem Susi var í afleysingum sem sagði að hún gæti bara komið aftur, hún þyrfti ekkert að vinna, hún gæti bara verið þar.

En anden morsom fortælling handlede om Fru S. med alle sine parykker som havde været kongens elskerinde. Jeg kan godt forstå chefen i firmaet hvor Susi arbejdede som vikar, som sagde at hun bare skulle komme igen, hun behøvede ikke, at arbejde, hun kunne bare være der.

21.08.09

Posted in Hverdagen, Náttúra at 8:22 pm by Ásdís

Nú kom loksins dagur þar sem hægt var að vera úti. Það var gott að Susi náði að sjá eitthvað annað en rigningu.  Við Kim og Jóhann tókum okkur frí í dag til að vera með Susi og keyrðum svolitlar krókaleiðir niðureftir til Davíðs.

Nu kom der endelig en dag hvor man kunne være udenfor. Det var godt, at Susi nåede, at se noget andet end regnvejr.  Johann, Kim og mig tog en fridag i dag for, at være sammen med Susi. Vi kørte ikke den mest lige vej ned for, at besøge David.

15.08.09

Umsnúningur / Vending

Posted in Hverdagen at 9:14 pm by Ásdís

Við keyptum nýtt tölvuborð, það er ansi stórt svo við létum loksins verða af því sem ég er búin að hugsa mér að gera lengi. Við snerum herberginu við og mér líkar það mikið betur svona. Ég hef bara farið þangað inn af neyð, þ.e.a.s. til að horfa á sjónvarpið. Nú get ég alveg hugsað mér að fara þangað inn og láta fara vel um mig.

Vi købte et nyt computerbord, det er temmelig stort så endelig gjorde vi noget som jeg har tænkt på længe. Vi vendte hele værelset og jeg kan megt bedre lide det nu. Før gik bare der ind hvis jeg absolut måtte, d.v.s. for at se fjernsyn. Nu tror jeg kommer til at bruge det meget mere og hygge mig der.

Annað herbergi í húsinu er tilbúið til að taka móti gesti. Susi, frænka hans Kims sem býr í Bandaríkjunum kemur að heimsækja okkur á mánudaginn og við hlökkum mikið til.

Et andet værelse i huset er klart til, at tage i mod en gæst. Susi, Kims kusine fra USA kommer på mandag og vi glæder os meget til, at se hende.

08.08.09

Rigning / Regn

Posted in Hverdagen at 10:02 pm by Ásdís

Hérna rigndi svo mikið á tímabíli í dag að það sást varla yfir til nágrannanna og niðurfallið hafði ekkert við.

På et tidspunkt i dag regnede det så voldomt, at vi knap kunne se over til genboen og nedløbene kunne ikke tage imod.

Fred Wesley & WAYJO

Posted in Hverdagen at 10:38 am by Ásdís

Við fórum á tónleika í gærkvöldi með Fred Wesley og West Australia Youth Jazz Orchestra, það var mjög gaman og skemmtilegt að sjá “trombone” í aðalhlutverkið. Það sem kom mest á óvart var lítill strákur sem kom inn á sviðið og spilaði saxafón með Fred Wesley. Hann heitir David Joy og maður á ábyggilega eftir að heyra meira frá honum.

Vi var på en concert i gåraftes og hørte Fred Wesley og West Australia youth Jazz Orchestra. Det var rigtig godt og morsomt at se “trombone” i hoevedrollen. Det som var mest overraskende var en lille dreng som kom ind på scenen i spilled saxofon med Fred Wesley. Han hedder David Joy og jeg er sikker på, at men kommer til, at høre mere fra ham.

http://www.youtube.com/watch?v=1Z9nBQ_sn8Y

02.08.09

Surprise, suprise!

Posted in Hverdagen at 9:24 pm by Ásdís

Dagurinn í dag kom mér gjörsamlega á óvart, ég hélt að ég væri að fara í hádegismat til Önnu og Vance en það sýndi sig að þau voru að halda upp á afmælið mitt. Kim var með í þessu og ég er mest hissa á að ég skildi ekki sjá í gegnum hann! Hann hafði eitthvað minnst á afmælispartý fyrir nokkrum vikum síðan en ég sagði þá að mig langaði ekki í neitt partý. Þau höfðu svo greinileg orðið sammála um að ef þau hefðu það svolítið á lægri nótunum, þá yrði ég ábyggilega ánægð- og það varð ég. Frábær dagur með góðu fólki!

Dagen i dag var virkelig en overraskelse, jeg troede jeg skulle til frokost hos Anna og Vance, men det vidste sig at de fejrede min fødselsdag. Kim var med på det her og jeg er mest overrasket over at jeg ikke gennemskuede ham. Han havde sagt et eller andet om en fest for nogen uger siden, men jeg havde klart sagt fra, at jeg ikke havde så stor lyst til det. Det viser sig, at de havde fundet ud af, at hvis de holdt det lidt “low key” så ville jeg sikkert blive glad – og det blev jeg! Dejlig dag med fine mennesker!

« Previous entries Next Page » Next Page »