30.05.09
Þrekvirki / En dåd
Allir sem hafa heimsótt okkur vita að hérna hefur Kim unnið þrekvirki.
Alle som har besøgt os ved at her har Kim begået en større dåd.
Tanker og oplevelser
Allir sem hafa heimsótt okkur vita að hérna hefur Kim unnið þrekvirki.
Alle som har besøgt os ved at her har Kim begået en større dåd.
Við fórum inn til Perth í dag í læknisskoðun. Það þurfti að skoða okkur öll þrjú vel, bæði innvortis og útvortis. Við erum nefnilega að sækja um PR, það er að segja varanlegt dvalarleyfi. Eins og er þá erum við algjörlega háð vinnuveitendanum hans Kims um dvalarleyfi. Þegar allt er á niðurleið þá er það einum of mikið óöryggi fyrir okkur að hafa mánaðarfrest til að fara út úr landinu ef hann missir vinnuna. Þegar við vorum búin að fara í röntgen fórum við í bæinn og fengum okkur hádegismat og náttúrlega varð Jóhann að fá heitt kakó á svona haustdegi.
Vi tog til Perth i dag for en legeundersøgelse. Vi måtte alle tre undersøges grundigt, både udvendig og indvendig. Vi søger nemlig PR, d.v.s. en permanent opholdstilladelse. Som det er nu er vi fuldstænidg afhængige af Kims arbejdsgiver for opholdstilladelse og i disse tider er det ikke særlig betryggende. Hvis han mister arbejdet har vi strængt taget en måned, at komme os ud af landet. Efter røntgenundersøgelsen spiste vi frokost i byen og selvfølgelig måtte Johann få varm kako på såden en efterårsdag.
Ég var að hugsa að þessi mynd gæti orðið gott pússluspil.
Jeg tænkte, at dette billede kunne blive et godt puslespil.
Þessi mynd er svolítið rólegri en báðar eru þær hluti af myndinni af Perth.
Dette billede er mere afdæmpet men begge er dele af Perths bybillede.
Við Kim fórum í göngtúr hérna um hverfið í morgun. Haust í lofti, sólin skein og fuglarnir sungu og görguðu og lífið var bara gott.
Kim og mig gik en tur i nabolaget i morges. Efterår i luften, solen skinnede og fuglenr sang og skreg og liver var bare godt.
Loksins fór að rigna. Þetta hefur verið þurrasti maímánuður síðan mælingar hófust, ég man eiginlega ekki hvenær ringdi síðast. Þessar myndir tók ég í vinnunni í fyrradag.
Endelig begyndte det, at regne. Dette har været den tørreste maj måned siden man begyndte, at måle nedbøren. Jeg kan ikke huske hvonår det sidst regnede. Jeg tog disse billeder på arbejde i forgårs.
http://www.abc.net.au/news/stories/2009/05/22/2577798.htm
I Queensland flæddu allar ár yfir bakka sína og enn einu sinni eru stórflóð þar, í þetta sinn í suð-austur Queensland í Brisbane og nágrenni. Þar rigndi á einum degi jafn mikið og gerir venjulega á þriðjungi úr ári.
I Queensland gik alle floder over sine bredder og der lå alt under vand. Denne gang var det syd-øst Queensland i Brisbane og områdene deromkring. Der faldt så meget regn på en dag som det ellers normalt gør en tredje del af året.
Við fórum á ströndina við Two Rocks, fyrir norðan Perth í gær og horfðum á sólina setjast.
Vi tog til stranden i går ved Two Rocks, nord for Perth og så solen gå ned.
Þennan hitti ég fyrir utan vinnustaðinn minn á leiðinni heim í dag.
Denne mødte jeg udenfor mit arbejde, på vej hjem i dag.
Nú er marið að hverfa af handleggnum á Kim og þá kom svolítið skrýtið í ljós. Hann hefur ekki bara fengið marbletti heldur er líka búið að merkja hann. Í morgun sáum við allt í einu far á handleggnum, við nánari athugun reyndist þetta vera höfuð, minnir á egypskan faraóa eða kannski einhverskonar indíanahöfðingja. Ég er búin að vera að leita á netinu en hef ekki fundið þessa mynd neinsstaðar. Ég er búin að komast að því að það er ýmislegt selt á netinu, m.a. alveg ótrúlegir hnífar sem eru auglýstir sem árásarhnífar.
Nu er blåmærkene ved at forsvinde fra Kims arm og da fik vi øje på noget mærkeligt. Han har ikke bare fået blåmærker, han er også blevet mærket på en anden måde. I morges opdagede vi et mærke på hans arm, ved nærmere undersøgelse vidste det sig at være enslags hoved, som ser ud til, at enten forestille en egyptisk farao eller en indianerhøvding. Jeg har ledet på nettet men har ikke kunne finne billedet nogen steder. Jeg fandt mange andre ting, det er helt utroligt hvad der er til salgs på nettet, bl.a. helt forfærdelig knive som bliver annonceret som angrebsknive.
Helgarnar líða alveg óþolandi hratt, við notuðum allan daginn í gær í að laga til og þrífa húsið.
Weekendene går irreterende hurtigt, vi brugte hele dagen i går på, at rydde op og gøre rent i huset.
Í dag fórum við í heimsókn, það var mjög gaman og nú er ég á leiðinni í rúmið og helgin búin.
I dag var vi på besøg, det var rigtig sjovt og nu er jeg på vej i seng, og weekenden overstået.
Að gefnu tilefni vil ég bara láta vita að Kim er að jafna sig eftir árásina, reyndar varð hann fyrir annarri árás í gær, köttur sem var lokaður inni í skúr hjá okkur réðist á hann með kjafti og klóm þegar Kim var að reyna að koma honum út. Förin eftir hann voru nú samt svolítið minni en eftir hina árásina.
Jeg vil bara fortælle, at Kim er ved, at komme sig helt efter angrebet. Godt nok blev han overfaldet igen i går, denne gang var det en kat. Den var blevet lukket inde i vores skur og angreb Kim helt vildt da han prøvede, at få den ud. Mærkene efter den var nu alligevel meget mindre end mærkene efter det første angreb.