24.05.08
Garðurinn / Haven
Það var svo fallegt í garðinum í dag í uppstyttunni að ég freistaðist til að taka nokkrar myndir.
Det var så smukt i haven i dag ind imellem regnbygene, at jeg måtte bare tage nogen billeder.
Á einhver uppskrift með fullt af sítrónum í sem er hvorki eftirréttur né áfengur drykkur?
Er det nogen der har en opskrift med masser af citroner i, men som hverken er en dessert eller en alkoholisk drik?
Teikninámskeið / Et tegnekursus
Ég er á teikninámskeið í UWA á þriðjudagskvöldum, þetta eru bara fimm skipti og ég missti af fyrsta tímanum því ég var á ferðalagi með vinnunni. Tíminn hreinlega flýgur þessa tvo tíma sem það tekur og ég gæti alveg hugsað mér að halda áfram endalaust. Kennarinn er alveg frábær, hann heitir Brian Simmonds og talar um að teikning sé eins og ljóðagerð og það á náttúrlega vel við mig. Hann segir líka: “The fear of getting it wrong pretty much guarantees that you will.” Við eigum sem sagt ekki að hugsa um að ekki gera neina vitleysu, bara treysta því að það komi eitthvað gott út úr því sem við erum að gera. Hann leggur áherslu á að sjá allt í tvívídd, hann segir að við skulum gleyma þrívíddinni, hún sé ekki til á mynd, við einbeitum okkur bara að stærðarmismuninum innan myndarinnar og að ljósi og skugga. Þetta er alveg frábærlega skemmtilegt, þannig að ég er farin að reyna að teikna öðruhvoru hérna heima.
Jeg går til et tegnekursus tirsdagaften, det er kun fem gange og jeg gik desværre glip af den første time, på grund af jeg var i Nornalup med arbejdet. Tiden flyver disse to timer det tager og jeg kunne tænke mig at bare fortsætte i en evighed. Læreren, Brian Simmonds, er fantastisk god og sammenligner det, at tegne med digtning og det høres godt ud i mine ører. Han siger også: “The fear of getting it wrong pretty much guarantees that you will.” Vi skal altså ikke tænke på, at ikke lave nogen fejl, men stole på, at det kommer noget godt ud af det vi holder på med. Han lægger vægt på, at prøve, at se alt todimensionalt, at vi bare skal glemme den tredje dimension, den findes alligevel ikke i et billede. Vi koncentrerer os om størrelseforholdene inden selve billedet og lys og skygge. Dette er virkelig sjovt så jeg prøver, at tegne lidt her hjemme også.
http://www.elementsartgallery.com.au/content/brian_simmonds/_fsetartist.html
http://www.gallery360.com.au/index.php?option=com_content&task=view&Itemid=12321&id=1&disp=gallery
22.05.08
Kveikjum eld…..
Ég var í vinnunni í dag, það vorum bara við vinnufélagarnir sem fórum til að líta á fleiri staði sem við getum farið á þegar fólkið fer að hópast til okkar. Við bíðum enn eftir því en látum okkur ekki leiðast á meðan.
Jeg var på arbejde i dag, det var kun os arbejdskammeraterne som tog hen, at se på forskellige steder, hvortil vi kan tage mennesker når de begynnder, at strømme til os. Vi venter stadigvæk på det, men vi keder os ikke mens vi venter.
21.05.08
Fairy Story by Stevie Smith
I went into the wood one day
And there I walked and lost my way
When it was so dark I could not see
A little creature came to me
He said if I would sing a song
The time would not be very long
But first I must let him hold my hand tight
Or else the wood would give me a fright
I sang a song, he let me go
But now I am home again there is nobody I know.
Aboriginal / Non-Aboriginal
Ég er að gera tilraun hérna sem ég veit ekki alveg hvort tekst eða ekki. Ég var á námskeiði í vinnunni um daginn sem var mjög fróðlegt. Það var fólk af ættum frumbyggja sem var með námskeið sem á að auðvelda okkur að vinna með frumbyggjum, auka skilning okkar á þeirra menningu. Það getur oft verið erfitt fyrir börn frumbyggja að byrja í skóla og þau skýrðu það m.a. með því sem stendur á síðunni sem fylgir með hérna fyrir neðan. Ég veit ekki hvort það er bara ég sem get opnað hana, ég vona að aðrir geti það líka. Þetta er sem sagt tilraun, annars verð ég víst að biðja Jóhann bróður að bjarga mér.
Jeg er ved, at experimentere med hvad jeg kan lægge på siden. Jeg var på et spændende kursus på arbejde forleden. Det var aboriginere som holdt det, med det formål, at øge vores forståelse for deres kultur og derved at lette samarbejdet med dem. Det kan ofte være vanskeligt for aboriginske børn, at begynde på skole og de forklarede det bl.a. med det som står på siden som jeg lader følge med. Jeg ved ikke om det bare er mig som kan åbne den, men jeg håber andre også kan det, ellers må jeg få Johann, min bror til, at hjælpe mig.
Mynd sem er tekin af Alastair McNaughton. / En del af et billede taget af Alastair McNaughton. http://www.desertimages.com.au/
19.05.08
…framhald / ….en fortsættelse
Kötturinn er hérna ennþá og nuddar sér svoleiðis utan í lappirnar á manni ef maður vogar sér út í garð. Ég held að hann eigi örugglega heima hérna einhversstaðar í nágrenninu.
Katten er her stadigvæk og gnider sig op ad ens ben hvis man vover sig ud i haven. Jeg er sikker på, at den bor her i nabolaget, et sted.
17.05.08
Köttur / En kat
Áður en við keyptum húsið bjuggu hérna litlir hundar. Þess vegna er kattalúga á öryggishurðinni. Það er búinn að vera köttur hérna fyrir utan í dag sem vildi ólmur komast inn, hann mjálmaði stöðugt og nuddaði sér utan í hurðina. Ég hef brennt mig á því áður að hlusta á svona kattamjálm og svo sitja uppi með kött af því að enginn eigandi gaf sig fram þó að við auglýstum eftir honum og gengum í hús með kettlingin til að reyna að finna eigandann. Það var nefnilega kettlingurinn Maximus, sem varð stór köttur sem nú býr í Danmörku, held að hann hafi verið besti köttur sem við hefum nokkurn tíma átt. Ég vildi ekki hætta á annað eins núna og harðbannaði Jóhanni að fara út og tala við köttinn, sem betur fer var hann að fara með vini sínum á “wrestling” svo það vorum bara við hjónakornin sem þurftum að standast þetta mjálm. Við höfum orðið fyrir því oftar en einu sinni, bæði hérna og í Noregi að kettir sem hitta okkur úti á götu hafi fylgt okkur heim, sama þó að við reynum að láta sem við sjáum þá ekki og jafnvel þó að við skömmum þá og segjum þeim að hundskast burt. Kötturinn sem var hérna úti er farinn núna sem betur fer!
Nú þegar ég er að skrifa þetta kemur Jóhann heim og segir að kötturinn sé hérna fyrir framan húsið!
Før vi købte huset boede her to små hunde, derfor er der en katteluge på sikkerhedsdøren. I dag har der været en kat udenfor som ville ind. Den miavede konstant og gned sig op ad døren. Jeg har brændt mig på det før, at lytte til sådan en kattemiaven og hænge på en kat som ingen ville vedkende sig, uanset om vi gik med killingen i husene omkring og satte en annonce op i butikkerne. Det var killingen Maximus som blev en stor kat og nu bor i Danmark hos min svigermor, han er nok den bedste kat vi nogensinde har haft. Jeg havde ikke lyst, at risikere sådan noget igen så jeg forbød Johann, at gå ud og snakke med katten. Heldigvis skulle han med sin ven til “wrestling” så det var bare Kim og mig som måtte stå for denne miaven. Vi har været ude for det mere end en gang, både her og i Norge, at katte som møder os på gaden følger med os hjem, uanset om vi ignorerer dem eller skælder dem ud. Katten sem var her udenfor er heldigvis gået!
Lige nu når jeg er færdig med at skrive dette her kommer Johann hjem og siger, at katten er her foran huset!
…og svo nokkrar myndir af Maximus sem við öll söknum.
…og så nogle billeder af Maximus som vi alle sammen savner.
16.05.08
Vinnufélagar / Arbejdskamerater
Ég var að uppgötva heimsíðuna hjá einum vinnufélaga mínum, prófið að fara inn á til dæmis ferðalög til að sjá hvað hann tekur ótrúlega fallegar myndir.
Jeg har lige opdaget hjemmesiden hos en af mine arbejdskamerater, prøv f.eks. at gå ind på rejser og se hvor utrolig flotte billeder han tager.
Svo spilar annar vinnufélagi í þessari hljómsveit.
Så spiller en anden arbejdskamerat i dette band.
Mango Madness
Ég las áhugaverða grein í blaðinu í dag um “mango madness”. Það hafa verið gerðar rannsóknir í Darwin sem sýna það að beinbrot í andliti stíga um 40 % í október og nóvember, þegar það er mikill hiti, skýjað en engin rigning. Mangóuppskeran er á þessum tíma svo einn læknirinn segir: “When there are mangos in the markets there is madness in the streets.”
Í Northern Territory má rekja 90% af öllum beinbrotum í andliti til ofbeldis. Þessi prósentutala er hvergi hærri í heiminum nema á Grænlandi! Rannsóknirnar ná 12 ár aftur í tímann þar sem þau hafa rekið saman hvað koma margir á slysavarðstofuna með beinbrot í andliti og hvernig veðrið hefur verið. Flesta mánuði komu 15 til 20 manns en í október og nóvember lá talan stöðugt í kringum 30. Nú er sem sagt verið að sanna það sem við höfum alltaf vitað að veðrið fer í skapið á manni, sérstaklega mikill hiti og vöntunin á sólskini.
Jeg læste en interessant arikkel i avisen i dag om “mango madness”. De har lavet undersøgelser i Darwin som viser, at knoglefrakturer i ansigt stiger med 40 % i oktober og november, når der er meget varmt, men skyet og ingen regn. De høster mango i denne tid og en af lægerne siger: “When there are mangos in the markets there is madness in the streets.”
I Northern Territory skyldes 90% af alle knoglefrakturaer i ansigtet vold. I hele verden overgås dette tal kun i Grønland! Undersøgelserne går 12 år tilbage i tiden og viser en sammenhæng mellem vejret og hvor mange henvender sig til skadestuen med brækkede ansigts knogler. De fleste måneder var der 15 til 20 mennesker som henvendte sig men i oktober og november lå tallet nogenlunde konstant på omkring 30. Nu er de altså ved at bevise noget vi altid har vidst, vejret påvirker humøret, specielt høj varme og mangelen på solskin.