29.06.07
Posted in Hverdagen at 12:27 pm by Ásdís
Þetta fer bara að vera eins og fréttatíminn, farið beint úr léttmetinu og þessu yfirborðskennda beint í alvarlegri hluti. Ég hef verið að hugsa um að skrifa um neyðarástandið sem er búið að lýsa yfir í samfélagi frumbyggja í Northern Territory en þetta er flókið og mikið mál sem á engan hátt er hægt að gera góð skil í einni bloggfærslu. Það kom út skýrsla um ástandið í þorpum fumbyggja, þar sem m.a. kom fram að það er mikil drykkja og misnotkun á börnum. Í kjölfar skýrslunnar lýsti ríkisstjórn Ástralíu yfir neyðarástandi í þessum þorpum. Nú er búið að senda lögreglu, her og annað gott fólk af stað til að heimsækja þessi þorp. Enginn virðist samt vera með það alveg á hreinu hvað eigi að gera. Ástandið í þessum þorpum er ekkert nýtt, fyrir tveimur eða þremur árum síðan, sagði einn af talsmönnum frumbyggja m.a. að hin kynferðislega misnotkun á börnum í þessum þorpum væri svo svakaleg að hún væri: “beyond comprehension”. Nú eru kosningar í haust og sumir vilja meina að allar aðgerðir núna séu allt saman bara pólítik. Alan Carpenter sem er einskonar forsætisráðherra (Premier) hérna í WA, er ekki í sama flokki og John Howard sem er forsætisráðherra (Prime Minister) yfir allri Ástralíu. Carpenter neitar að senda 10 lögreglumenn til Northern Territory eins og ríkisstjórnin er búin að fara fram á, segir að WA megi ekki við að missa þá. Hann meinar að ríkisstjórnin viti ekki hvað hún er að gera og segir að það hafi gerst mikið í þessum málum hérna í WA síðastliðin ár, og nú kemur af hverju ég hef þetta með hérna: Síðastliðna ÞRJÁ MÁNUÐI í WA hafa fundist 20 börn frumbyggja undir 14 ára með kynsjúkdóma, þar af tvö undir 5 ára aldri, fyrir utan 6 börn sem ekki eru frumbyggjar. Ef ástandið hérna hefur lagast mikið hvernig hefur það þá verið???? Líklega “beyond comprehension”!
Det bliver på min blogside som på TV-avisen, direkte fra det lette og overfladiske til det dybt alvorlige. Den australske regering har i kølvandet af en rapport om livet i det små Aborigienere samfund i Northern Territory, erklæret en undtagelsestilstand i disse samfund. Rapporten fortæller bl.a. om et massivt alkoholmisbrug og udbredt seksuelt misbrug af børn. Regeringen har sendt politi, militær og flere godt folk til disse samfund. Ingen ser dog helt ud til at vide hvad de egentlig skal gøre. Tilstanden i disse samfund er ikke noget nyt, for tre år siden fortalte en af repræsentanterne for Aborigienere om så massivt seksuelt misbrug af børn, at det var “beyond comprehension”. Til efteråret skal der være valg og mange er bange for at det som bliver gjort nu, kun er politisk taktik. Alan Carpenter som er enslags statsminister (Premier) for staten WA, tilhører ikke det samme politiske party som John Howard statsminister (Prime Minister) for hele Australien. Carpenter nægter at sende 10 politifolk som regering har bedt om fra hver stat, til Northern Territory, han siger at WA ikke kan undvære dem. Han mener at regeringen ikke helt ved hvad den holder på med og siger at tilstanden her i WA har forbedret sig betydeligt de sidste par år og nu kommer hvorfor jeg har dette politiske mellemspil med her: De sidste TRE MÅNEDER er der fundet 20 Aboriginer børn under 14 år med kønssygdomme, der af to børn under 5 år, foruden 6 børn som ikke er Aboriginere! Hvis tilstanden har forbedret sig meget, hvordan har den så været???? Sandsynligvis “beyond comprehension”!
Permalink
28.06.07
Posted in Hverdagen at 10:24 pm by Ásdís
Ég fór í klippingu og litun í dag. Öll gráu hárin sem hafa fjölgað sér ótrúlega hratt síðasta árið eru horfin! Þetta er þvílíkur viðburður í lífi mínu að mér fannst að það ætti að koma á bloggsíðuna. Ég hélt að það ætlaði aldrei að takast, ég veit ekki hvað það þurfti að taka margar myndir áður en það tókst að taka almennilega mynd, ég læt örfá sýnishorn fljóta með.
Mit hår blev både farvet og klippet i dag. Alle de grå hår som har steget utrolig i antal, i løbet af det sidste år, er forsvundet! Det er sådan en begivenhed i mit liv, at jeg syntes det skulle med på blogsiden. Jeg var ved at tro at det ikke ville lykkes, jeg ved ikke hvor mange billeder der måtte til, før vi endelig fik et ordentlig billede. Jeg lader nogen få exemplarer følge med.

Permalink
27.06.07
Posted in Hverdagen at 8:44 am by Ásdís
Ég stal þessu frá bloggsíðunni hennar Steinunnar Ólínu ( http://steinunnolina.blog.is/blog/steinunnolina/ ) sem hefur það eftir Aristoteles, mér finnst þetta ansi gott hjá þeim.
Jeg stjal nedenstående fra en islandsk blogside som citerer Aristoteles, jeg synes det er et godt citat:
Anyone can become angry. That is easy. But to be angry with the right person, to the right degree, at the right time, for the right purpose and in the right way… that is not easy.
Permalink
24.06.07
Posted in Hverdagen, Náttúra at 4:53 pm by Ásdís
Það var talað um það í fréttunum að nú væru búnir að vera þurrkar hérna í WA í sjö ár. Hérna fyrir norðan okkur, í nágrenni Geraldton, var maí mánuður sá þurrasti síðan mælingar hófust. Margir bændanna eru farnir að fella skepnurnar því að þeir geta ekki fóðrað þær, mér skilst að það séu um 70% færri húsdýr í sveitunum á þessu svæði núna en voru áður. Fleiri bændur hafa ekki haft neinar tekjur í tvö ár. Það var alveg átakanlegt að horfa á viðtalið við einn bóndann sem gerði ráð fyrir að þurfa að fara að skjóta lömbin sín, hann sagðist hafa þurft að gera það einu sinni áður og vildi ekki þurfa að gera það aftur. Margir eru farnir að tala um að hætta búskap, þeir eru hræddir um að þurrkarnir séu komnit til að vera, vegna þess að jörðin sé að hitna. Ég vildi óska þess að þeir fengju svona rigningu eins og er búin að vera hérna í dag og í gær. Mér skildist á sjónvarpsfréttunum í gær að það hefði ekki ringt þar sem þeir þurftu mest á rigningunni að halda.
I nyhederne snakkede de om, at tørken nu har varet i syv år i WA. Nord for os, omkring Geraldton, var maj måned den tørreste siden de begyndte at måle nedbøren. Mange er begyndt at skyde sine husdyr fordi de ikke kan fodre dem, jeg forstod det sådan at der var 70% færre husdyr i området nu end der var før. Mange af bønderne har ikke haft nogen indtægt i to år. Det var hjerteskærende at se et interview med en bonde som var bange for at han måtte til at skyde sine lam, det havde han været nødt til engang før og det havde han ikke lyst til at gøre igen. Mange snakker om at de måske bliver nødt til at nedlægge gårdene, de er bange for at dette er en permanent tilstand på grund af den globale opvarming. Jeg ville ønske at de kunne få sådan regn som vi har haft i går og i dag. I nyhederne sagde de, at det desværre ikke havde regnet hvor der var allermest behov for det.

www.thewest.com.au:80/default.aspx?MenuID=146&ContentID=31978
Þó að það færi nú að rigna þá tekur það mörg ár fyrir jörðina að jafna sig, jarðvegurinn er meira eða minna fokinn í burtu af því að það vex ekki neinn gróður til að halda honum.
Selvom det begynder at regne de steder, kommer det til at tage mange år før jorden kommer sig. Jorden har nemlig i stor grad blæst væk, på grund af der ikke har været nogen planter for at holde på den.
Meira að segja bændur sem manni hefði nú ekki dottið í hug að yrðu í vandræðum vegna þurrka eru í vandræðum núna, eins og maður getur séð á þessari frétt um bíflugnabú.
Til og med bønder som man ikke ville have troet at ville få problemer på grund af tørken har det vanskelig nu, som man kan se af denne nyhed om birøgtere.
www.thewest.com.au:80/default.aspx?MenuID=146&ContentID=32196
Permalink
19.06.07
Posted in Hverdagen at 9:10 pm by Ásdís
Davíð er kominn með í liðið í innanhússfótbolta í vinnunni. Hann lék fyrsta leikinn í kvöld og var að koma heim, alveg búinn að vera. Hann skoraði fyrsta mark leiksins.
David er kommet med på arbejdspladsens hold i indendørsfodbold. Han spillede sin første kamp i aften og er lige kommet hjem, fuldstændig færdig. Han scorede kampens første mål.

Permalink
18.06.07
Posted in Hverdagen at 7:40 pm by Ásdís
Davíð sá um kvöldmatinn í kvöld og ég held hann hafi slegið metið og gert stærstu hamborgara sem búnir hafa verið til á þessu heimili.
David lavede aftensmaden og jeg tror han har slået rekorden og lavet de største hamborgere som er blevet lavet i dette hjem.

Permalink
17.06.07
Posted in Hverdagen at 11:18 pm by Ásdís
Við vorum að koma úr heimsókn hjá Önnu og Vance, þau búa í íbúð niður við Swan River og útsýnið frá svölunum hjá þeim er alveg stórkostlegt. Við sáum bæði höfrunga og pelikana synda framhjá.
Vi har lige været på besøg hos Anna og Vance, de bor i en lejlighed ved Swan River og udsigten fra deres altan er fantastisk flot. Vi så både delfiner og en pelikan svømme forbi.

Við fórum í göngutúr meðfram ánni eftir kvöldmat og þá var orðið svo kalt að allir þurftu að fá lánaða jakka.
Vi gik en tur langs elven efter aftensmaden og da var der blevet so koldt at alle måtte låne jakker.

Permalink
Posted in Hverdagen at 12:35 pm by Ásdís
Við héldum upp á Sankt Hans með Dönunum í gær, viku fyrirfram, heima hjá Niels og Lyn sem búa úti í sveit á mjög fallegu svæði í Gidgegannup. Það var mjög gaman og fólk á öllum aldri, margir sem eru búnir að búa hérna lengi. Það voru margir afarnir og ömmurnar sem töluðu dönsku en svo heyrði maður að þau töluðu ensku við barnabörnin, það sýndi vel hvernig innflytjendur smám saman verða Ástralir.
Vi fejrede Sankt Hans med danskerne i går, en uge i forvejen, hjemme hos Niels og Lyn. De bor ude på landet, i et meget smukt område i Gidgegannup. Vi havde det sjovt med mennesker i alle aldre, mange af dem som har boet her længe. Der var mange af de ældre som snakkede dansk men så hørte man, at de snakkede engelsk med børnebørnene. Det blev meget tydeligt hvordan indvandrere lidt efter lidt bliver til Australere.



Permalink
15.06.07
Posted in Hverdagen at 5:19 pm by Ásdís
Það er ekki alltaf jafn auðvelt að flytja til nýs lands og stundum fær maður sig fullsaddann og vildi bara óska þess að allt væri eins og “heima”. Nú þegar við erum búin að vera hérna í 10 mánuði er nýjabrumið farið af sumu og margt er farið að venjast. Það var oft hérna í byrjun sem mér fannst bara ég gæti ekki meðtekið meira. Maður þarf ekki bara að kynnast nýrri menningu og siðum, heldur eru litlu hversdagslegu hlutirnir öðruvísi en maður á að venjast. Umbúðirnar á vörunum í matvörubúðunum, bara það að læra hverskonar mjólk er í hverskonar umbúðum er hluti af því að flytja. Mér datt þetta í hug þegar ég var að hengja út þvottinn í dag og varð litið á þvottaklemmurnar. Svona klemmur hafði ég ekki séð áður en ég kom hingað —– þær eru mjög góðar.
Det er ikke altid lige let at flytte til et nyt land og mange gange får man mere end nok og ville bare ønske at alting var som “derhjemme”. Nu når vi har boet her i 10 måender er ikke alting så nyt mere og mange ting har man vænnet sig til. Der var ofte i begyndelsen som jeg synes jeg var fuldstændig mæt af indtryk. Man skal ikke bare lære en ny kultur og traditioner at kende, der er også de små praktiske ting som er anderledes end det man er vant til. F.eks. bare emballegen på madvarer, det er en del af det at flytte, at lære i hvilken slags emballage, hvilken slags mælk bliver solgt. Jeg kom i tanker om dette da jeg hængte ud vasketøjet i dag og så på tøjklemmerne. Jeg havde aldrig set sådan nogen tøjklemmer før jeg kom her til —- de er faktisk rigtig gode.

Permalink
Posted in Garður, Hverdagen at 4:44 pm by Ásdís
Þetta er ég búin að afreka í dag, leggja heilan stíg. Já, já, ég veit að hann er ekkert ógurlega langur, kannski bara frekar stuttur. Hann leynir samt á sér, margt sem ekki sést sem þarf að gera þegar maður er að leggja stíg. Það eru t.d. margar ferðirnar sem ég er búin að ganga með hjóbörurnar í dag, til að fylla upp, áður en ég lagði steinana. Já, svo þarf að trampa og bleyta í o.s.frv. Það sem ég er að reyna að koma að hérna er að ég er bara nokkuð ánægð með afrakstur dagsins.
Dette har jeg lavet i dag, lagt en hel sti. Ja, ja, jeg ved den er ikke særlig lang, måske hellere bare lidt kort. Der er alligevel ikke alt som det ser ud til. Der ligger masser af skjult arbejde i sådan en sti. Jeg har gået meget med tryllebør i dag for at fylde op under stien før jeg lagde stenene. Jag så skulle jeg trampe jorden ned og gøre det hele vådt o.s.v. Det jeg prøver at sige er, at jeg er ganske tilfreds med dagens arbejde.

Permalink
« Previous entries Next Page » Next Page »