29.05.07
Posted in Hverdagen at 8:14 pm by Ásdís
Eins og kannski er hægt að sjá þá hjálpaði Davíð mér með fyrirsögnina. Ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem hann hefur sagt eitthvað um hvað honum findist að ég ætti að skrifa á bloggið. Hann var að kaupa sér mótorhjól. Hann má ekki keyra það ennþá án þess að hafa Kim aftan á en á fimmtudaginn tekur hann prófið, svo við óskum honum bara góðs gengis.
Som man måske kan se, så hjalp David mig med overskriften. Jeg tror det er første gang han siger noget om hvad han synes jeg skal skrive på blogsiden. Han har købt en motorcykel. Han har ikke lov til at køre den endnu, uden at have Kim bag på, men på torsdag går han op for at tage motorcykelkørekort. Vi ønsker ham held og lykke.

Permalink
Posted in Hverdagen at 4:30 pm by Ásdís
Ég var að fá smásögurnar mínar endursendar frá Gyldendal, þau vilja ekki gefa þær út. Ég er búin að send þær áfram til næsta forlags, vonandi gengur betur þar.
Jeg har lige fået mine noveller retur fra Gyldendal. De vil ikke udgive dem. Jeg har sendt dem videre til næste forlag og håber at det går bedre der.
Permalink
28.05.07
Posted in Garður at 10:17 pm by Ásdís
Það er nú gaman að geta plantað í pottana úti fyrir veturinn.
Det er sjovt at kunne plante i potter udendørs, for vinteren.

Permalink
23.05.07
Posted in Náttúra at 10:39 am by Ásdís
Haustið hérna í Perth er svolítið öðruvísi en maður á að venjast.
Efteråret her i Perth er lidt anderledes end det vi er vant til.


Permalink
22.05.07
Posted in Hverdagen at 4:51 pm by Ásdís
Ég fékk mér göngutúr í morgun til að kaupa dagblaðið og tók á mig smá krók, það er margt að skoða þó að maður fari ekki lengra.
Jeg tog en gåtur i morges for at købe avisen. Jeg tog en lille omvej, man behøver ikke så langt for at opleve noget.



Permalink
Posted in Hverdagen at 11:15 am by Ásdís
Mér fannst nú þessi fyrirsögning í blaðinu í dag svolítið fyndin, 1,5 dollari er rétt rúmlega 77 íslenskar krónur.
Jeg synes denne overskrift i avisen i dag er lidt morsom 1,5 dollar er 6,81 dkr og 7,45 nrk.

Permalink
Posted in Dýralíf at 9:16 am by Ásdís
Þeir kalla þetta hrafn, mér finnst fuglinn mest líkjast kráku. Okkur fyrstu kynni af Australien raven var þegar við vorum nýkomin til Ástralíu og fórum á eigin vegum út í náttúruna og vorum ægilega spennt hvað við myndum nú rekast á. Við vorum þarna einhversstaðar á milli grastrjánna í algjörlega framandi umhverfi, sáum ekkert dýr en heyrðum allt í einu þessu svakalegu vein. Mér stóð ekki alveg á sama og var fegin þegar við loksins sáum að þetta var fugl sem hljómaði eins og hás, breima köttur, ég hafði aldrei heyrt um neina hættulega fugla í Ástralíu. Ég veit ekki hvort maður venst þeim einhverntíma, þó að þeir séu mjög algengir hérna,það er ekki alltaf jafn gaman að vakna við þennan “fuglasöng”. Ég fann hljóðin á netinu, þau eru samt langdregnari og verri í raunveruleikanum.
De kalder fuglen ravn, jeg synes den mest ligner en krage. Vores første møde med den var da vi lige var flyttet her til og tog ud i naturen på egen hånd og var meget spændte på hvad vi ville støde på. Der var vi, indimellem græstræerne, i fuldstændig fremmede omgivelser og hørte pludselig de frygteligste hyl, som fra en hæs, brunstig hankat. Jeg var overhoved ikke tryg ved det og blev glad da vi endelig fandt ud af at lydene kom fra en fugl. Jeg havde nemlig aldrig hørt om nogen farlige fugle i Australien. Jeg ved ikke om man nogensinde vænner sig til de fugle her, selvom de er meget udbredte, det er ikke altid lige morsomt at vågne op ved denne “fuglesang”. Jeg fandt lydene på nettet men de er værre og mere langtrukne i virkeligheden.
www.anbg.gov.au/sounds/raven.au

Permalink
21.05.07
Posted in Hverdagen at 10:54 pm by Ásdís
Ég er búin að vera veik um helgina, hélt hreinlega á tímabili að ég myndi drukkna í kvefi. Ég er á batavegi núna og það er varla hægt annað þegar eiginmaðurinn kemur með svona fallegan blómvönd bara til að óska mér góðs bata!
Jeg har været syg i weekenden, troede på et tidspunkt at jeg simpelthen ville drukne i snot. Jeg er i god bedring nu, kan ikke andet, siden min kære mand kom hjem med sådan en fin buket, bare for at ønske god bedring.

Permalink
19.05.07
Posted in Hverdagen at 12:52 pm by Ásdís
Það er ýmislegt sem fæst í henni Ástralíu!

Permalink
18.05.07
Posted in Hverdagen at 11:17 am by Ásdís
Við höfum verið að tala um af hverju okkur er svona kalt hérna þegar hitinn fer niður í tíu gráður eða minna. Ekki hefði okkur verið svona kalt í 10 gráðum á Norðurlöndunum, eða hvað? Við hugsuðum aðeins lengra, við erum vön því að það sé hlýtt inni í húsunum. Hérna er jafn kalt eða kaldara inni en úti. Hitamunurinn sem við upplifum hérna er líka miklu meira en við höfum nokkurntíma upplifað áður, ég held að hitinn hafi farið upp í 48 gráður í sumar og svo vorum við að heyra að það getur farið niður fyrir frostmark á nóttunni í vetur. Við erum með loftkælingu sem við getum látið blása heitu en hún nær yfir takmarkað rými svo við fórum í gær og keyptum okkur gasofn. Það var algjör draumur að koma fram úr í morgun og Kim búinn að kveikja á ofninum, þetta verður allt annað líf. Þessi litli ofn nær að hita upp alla stofuna og meira til. Jóhanni er ekki alveg batnað ennþá og við hin erum ekki alveg frísk heldur svo nú erum við búin að byrgja okkur upp af 200 ml af hóstasaft sem kostaði 19 dollara (984 ikr) og 150 töflum af C vítamíni á 33 dollara (1700 ikr), ég skrifa verðið af því mér blöskraði hreinlega hvað þetta er dýrt. Nú sitjum við sem sagt á kvöldin við nýja ofninn okkar, drekkum hóstasaft og bryðjum vítamínpillur!
Vi snakkede om hvor mærkeligt det er, at vi fryser sådan her da varmen går ned i 10 grader eller mindre. Så meget fryser vi ikke i ti grader i de Nordiske lande, eller hvad? Vi er selvfølgelig vant til at der er det varmt inde i husene, her er der lige så koldt eller koldere indenfor som udenfor. Varmeforskellene her er også meget større end det vi plejer at opleve, jeg tror varmen gik op i 48 grader i sommers og vi har lige hørt at den kan gå under frostmark om natten, til vinter. Vi har aircondition vi kan bruge som varmeblæser, men den rækker bare over begrænset område, så vi købte en gasradiator i går. Det var bare dejligt at stå op i morges hvor Kim havde tændt radiatoren, det bliver et helt andet liv. Denne lille radiator når at varme op hele stuen og mere til. Johann er ikke helt frisk endnu og vi andre er hellere ikke helt på top så nu har jeg været ude og handle både 200ml hostesaft til 19 dollar (86 dkr, 95 nkr) og 150 C-vitaminpiller til 33 dollar (150 dkr, 164 nkr), jeg har prisen med fordi jeg synes det var frygtelig dyrt. Nu sidder vi altså om aftenen ved vores varme radiator, drikker hostesaft og gnasker vitaminpiller!
Mér fannst svolítið fyndnar leiðbeiningarnar sem fylgdu ofninum, varla hefðum við séð samskonar leiðbeiningar annarsstaðar:
Jeg synes vejledningen som fulgte med radiatoren lidt morsom, vi havde næppe set en samme slags, andre steder:

Permalink
« Previous entries Next Page » Next Page »