28.12.06

Perth

Posted in Hverdagen at 11:54 pm by Ásdís

Í Perth er gamalt og nýtt í einum hrærigraut og það lítur út fyrir að það hafi alveg gleymst að skipuleggja borgina.

Perth er en pærevælling af gammelt og nyt og det ser ud til at husene bare er bygget tilfældigt uden nogen planer.

img_3932_2_1.JPG  img_3933_1_1.JPG

img_3935_3_1.JPG img_3936_4_1.JPG

Jólin 2006/Julen 2006

Posted in Náttúra at 1:33 pm by Ásdís

Nú er ég loksins komin með nettengingu aftur og vona að hún haldist. Við héldum jól í sumaryl, þessar tvær myndir eru frá Þorláksmessu.

Nu er jeg endelig på internettet igen og håber at forbindelsen holder nu. Vi holdt jul i sommervarmen, disse to billeder er fra lille juleaften.

 

img_3679_1_1.JPG img_3692_2_1.JPG

Það varð nú svolítið jólalegt þrátt fyrir sumar og sól….

Det blev lidt juleagtig trods sol og sommer……

img_3697_3_1.JPG

 ..og þegar ég hugsa mig um voru þetta nú alvöru jól á margan hátt, við borðuðum…..

…og når jeg tænker mig om blev dette alligevel en tradtionel jul på mange måder, vi spiste…..

img_3732_2_1.JPG img_3734_3_1.JPG img_3739_1_1_1.JPG

…og slöppuðum af.

…og slappede af.

img_3751_1_1.JPG img_3767_1_1_1.JPG img_3784_1_1.JPG img_3865_1_1.JPG

Annan jóladag fórum við í smáferðalag til að reyna að finna kengúrur til að sýna Daníel og það tókst.

Anden juleda tog vi på tur for at prøve at finde kenguruer for at vise Daniel og det lykkedes.

img_3793_2_1.JPG img_3794_2_1.JPG img_3855_3_1.JPG

Það voru fleiri en við sem slöppuðu af um jólin..

Det var flere end os som slappede af i julen….

img_3795_3_1.JPG img_3806_1_1_1.JPG

 

img_3812_4_1.JPG img_3814_5_1.JPG img_3831_6_1.JPG

22.12.06

Ekkert internet / Uten internet

Posted in Náttúra at 2:09 pm by admin

Ásdís hefur verið án internets í nokkra daga og það lítur ekki út fyrir að hún fái netið upp fyrir jól. Hún óskar öllum Gleðilegra Jóla.

Ásdís har vært uten internet i noen dager nå, og det ser dårlig ut med nettilgang før jul. Hun ønsker alle riktig God Jul.

Hilsen
Johann

18.12.06

Sólarlag/Solnedgang

Posted in Hverdagen at 10:50 pm by Ásdís

Sólarlagið var fallegt í kvöld.

Der var en smuk solnedgang i aften.

img_3575_4_1.JPG img_3578_3_1.JPG img_3580_2_1.JPG

img_3582_1_1.JPG img_3586_5_1.JPG

 

Daníel

Posted in Hverdagen at 1:07 pm by Ásdís

Daníel er kominn heim til mömmu!

Daniel er kommet hejm til mor!

img_3521_1_1.JPG

Það mikilvægasta var náttúrlega gert fyrst.

Det vigtigste blev selvfølgelig gjort først.

img_3516_1_1.JPG

Það þarf smátíma til að venjast sumarsólinni og birtunni.

Det tager lidt tid at vænne sig til det skarpe sollys.

img_3510_1_1.JPG

17.12.06

Jólatré/Juletræ

Posted in Hverdagen at 9:10 pm by Ásdís

Við fórum í innkaupaleiðangur í dag og ætluðum m.a. að kaupa jólatré. Ég er hrædd um að við séum ansi seint á ferðinni, jólatrén sem við fundum voru BLEIK, FJÓLUBLÁ, SVÖRT eða þau voru stráð glimmeri, með ljós í nálarendunum eða voru á hvolfi, bókstavlega á hvolfi, mjóust niðri og víkkuðu svo upp. Það verða fleiri búðir opnar á morgun og ég vona að það sé ekki sama ástandið allsstaðar. Það er ekki bara, bara að fara út í búð og kaupa jólatré.

Vi var på en total mislykket indkøbstur hvor vi havde tænkt at købe et juletræ. De eneste juletræer der var tilbage var LYSERØDE, LILLA eller SORTE. De hvde godt nok nogen få grønne men da var de strøet med glitter, havde lyse i nålespidsene eller var på hovedet, spidsen nederst og så udvidede de sig op. Der er flere forretninger åbne i morgen, jeg håber at vi kann finde et enkelt grønt plastictræ, håbet er lysegrønt, he, he, he…….

Kim er kominn með ástralskt ökuskýrteini eða er það ökuskírteyni… ég er svo rugluð í y reglunni.

Kim har fået australsk kørekort.

img_3507_1_1.JPG

 

Hiti/Temperatur

Posted in Hverdagen at 10:00 am by Ásdís

Ég var að heyra að hitinn hefði farið upp í 38 gráður, ef þetta verður ekki mikið verra en þetta þá lifi ég þetta af. Við höfðum viftuna í gangi í alla nótt í svefnherberginu.

Jeg hørte at temperaturen var oppe på 38 grader i går, hvis det ikke bliver meget værre end dette her så kommer jeg til at overleve det. Vi havde viften tændt i soveværelset hele natten.

16.12.06

Ljóð

Posted in Ljóð/Digte at 9:24 pm by Ásdís

Ég var að raða bókunum mínum í bókahyllu sem við vorum að kaupa og þar rakst ég á ljóðabókina Sólin dansar í baðvatninu eftir hana Gunnhildi Sigurjónsdóttur frænku mína. Í henni erum mörg góð ljóð, þ.á.m. þetta:

 Afi Bárður

Hvers vegna
ertu svona grimmur
á svipinn?

Það er vegna þess
að þar sem ég
ólst upp
var ekkert
nema sjór
og grjót

sagði hann
og strauk
litlu stúlkunni
blíðlega
um vangann

15.12.06

Jólamatur/Julemad??????????????

Posted in Hverdagen at 10:38 am by Ásdís

Hvað eigum við að hafa að borða á jólunum???????? Ég get ekki verið með steikt lambalæri og brúnaðar kartöflur, ég get ekki verið með önd, hangikjöt er náttúrlega alveg útilokað, það kemst ekki inn í landið, ég get ekki verið með neitt af því sem ég er vön að vera með, það yrði alltof þungt í maga ef það er satt sem sagt er að hitinn geti verið um 40 gráður hérna á jólunum. Reyndar halda Ástralarnir jólin þann 25. des. Við ætlum að hafa okkar aðfangadagskvöld þann 24.des og þá verður hitinn líklega ekki alveg svo mikill en sama, nú megið þið gjarnan skrifa í comment og koma með tillögur. Hvað getum við haft í matinn á aðfangadagskvöld? Mamma er búin að redda gotteríismálunum, það verða algjör jól á því sviði, tópas, ljósar súkkulaðirúsínur frá Nóa, Siríus suðusúkkulaði og Appolo lakkrískonfekt, allt þetta bíður jólanna inni í ísskáp, naaammmmm!

Hvad skal vi have at spise i julen?????? Vi kan ikke have lammelår med brunede kartofler, vi kan ikke ha and eller flæskesteg (ikke det at vi nogen sinde har haft flæskesteg) men kort og godt vi kan ikke have noget af det vi plejer at have til jul, det ville blive altfor tungt i varmen. Det eneste vi holder fast i er Kims risalamande, den giver vi ikke slip på men ellers må I gjerne skrive foreslag i comment. Hvad skal vi spise juleaften? Tænk på hvad kunne være en god julemad i 40 graders varme, måske ikke så varmt lige selve juleaften men deromkring.

14.12.06

Tinni/Tintin

Posted in Hverdagen at 9:29 am by Ásdís

Ég kom alveg af fjöllum. Jóhann stóð fyrir framan mig og sagði að Tinni væri vondur. Það kom fullt af Tinna sögum upp úr einum pappakassanum um daginn og Jóhann fór strax að lesa. Ég man að ég hafði mjög gaman af Tinnabókunum þegar ég var lítil, Jóhann bróðir fékk alltaf Tinnabók í jólagjöf og það var varla hægt að bíða með að lesa hana, þó að hann ætti nú forgangsréttinn. Tinni var hetja og góði kallinn eða kannski heldur góði drengurinn í sögunum, það var ég alveg viss um, svo gleymin er ég nú ekki.

Ég fór að spyrja Jóhann út úr og hann kom nú reyndar með ansi margt sem studdi þessa skoðun hans að Tinni væri vondur. Í Tinni í Kongó er hann hreinlega dýraníðingur, hann rífur skottið af ljóni, hann bara skýtur og skýtur fimmtán sinnum og heldur að hann hafi ekkert hitt en það sýnir sig að hann hefur drepið 15 hirti og hann kippir sér ekkert upp við það. Hann treður svampi upp í leopard og sprautar svo vatni upp í hann svo svampurinn stækkar og stækkar í maganum, þannig leopardinn verður veikur, ekki nóg með það heldur sparkar Tinni líka í hann. Hann sparkar í höfuðið á górillu, hann fóðrar slöngu með sínum eigin hala svo hún étur sjálfa sig og hann fer á fílaveiðar samtímis sem hann segir að það sé langt síðan það hafi sést fílar á svæðinu. Jóhann var alveg stórhneykslaður á honum. Í Tinni í Ameríku er hann heldur ekki barnanna bestur. Hann kveikir bál sem hann svo gleymir að slökkva, það kemur af stað skógareldum, hann flýr og hoppar niður í vatn og er bara feginn að bjarga sjálfum sér en er sama um allt annað sem deyr og brennur. Honum virðist líka vera alveg sama þegar hann finnur olíu og ríku kallarnir koma og hrekja indíánana af þeirra eigin landi. Jóhann sagði mér frá þessu öllu, kannski hef ég aldrei lesið Tinni í Kongó eða Tinni í Ameríku…… eða hvað?

Ég sem sálfræðingur ætti að vera sú fyrsta til að vita að við getum öll haft einhverjar myrkari hliðar en ég hélt nú að söguhetjur í teiknimyndasögum væru kannski svolítið einfaldari, ég er alls ekki viss um að mér líki að Tinni sé ekki bara góði strákurinn!

Forleden så pakkede vi op flere Tintin bøger og Johann satta strax i gang med at læse. Ganske hurtigt efter kom han og fortalte mig at Tintin var ond. Jeg blev meget overrasket, det kunne jeg slet ikke huske noget om, tværtimod så var Tintin helten og jeg har læst mange Tintin bøger! Min bror Johann fik en til julegave hvert år og jeg kunne næsten ikke vente til han var færdig med at læse for at kunne komme til selv.

Når han begyndte at fortælle hvad han havde læst så jeg at han havde mange gode argumenter som viste at Tintin faktisk måske var lidt ond. I Tintin i Kongo er han ret og slet en dyremishandler, han river halen af en løve, han propper en svamp op i en leopard og vander den så den bliver større og større i maven og leoparden bliver syg og som det ikke var nok så sparker han den også. Han sparker ogsð en gorilla i hovedet. Han skyder helt vildt, femten gange og tror ikke han har ramt noget men når det viser sig at han har skudt 15 hjorte så synes han det er helt OK. Han får en slange til at spise sin egen hale så den spiser sig selv. Dessuden går han på elefantjagt! Dette til trods for at der er meget få elefanter i området. Johann var temmelig rystet over ham.

I Tintin i Amerika tænder han et bål han glemmer at slukke, så det udvikler sig til en skovbrand. Det lykkes Tintin at hoppe ned i en sø og redde sig selv, det er han glad og fornøjet med og går så bare videre i historien uden at bryde sig om hvad han har afstedkommet. Han virker også helt ligeglad med at når han har fundet olie så kommer de rige og overtager landet og smider indianerne ud af sit eget land.

Alt dette er genfortalt af Johann, måske har jeg aldrig læst Tintin i Kongo, eller Tintin i Amerika…… eller hvad?

Som psykolog skulle jeg være den første til at vide at vi alle sammen kan indeholde lidt mørkere sider, jeg havde bare forestillet mig at tegneseriefigurer var lidt enklere, jeg er ikke sikker på at jeg kan lide at Tintin ikke bare er den gode helt!

img_3361_1_1.JPG

« Previous entries Next Page » Next Page »