03.09.10
Posted in Hverdagen, Náttúra at 5:57 pm by Ásdís
Ég var að hugsa að bloggsíðan er eiginlega dagbók yfir veru okkar hérna í Ástralíu og þá ættu erfiðu dagarnir kannski að fá að vera með líka. Ég læt hérna með myndir af okkur Kim sem segja kannski meira en orð hvernig við höfum það, ægilega stressuð og þreytt….
Jeg tænkte at egentlig er blogsiden her en dagbog fra vores tilværelse i Australien og da skulle de vanskelige dage også få lov at være med. Jeg lægger ud billeder af Kim og mig som nok fortæller mere and mange ord hvordan vi har det, frygtelig stressede og trætte…..

….það voru verrir myndir, en ég vil ekki láta þær á netið.
…vi har dårligere billeder, men jeg har ikke lyst til, at lægge dem ud på nettet.
Kim er búinn að fá tilboð um vinnu í Danmörku svo allt bendir til þess að við flytjum til Kaupmannahafnar. Það er bara svolítið erfitt að láta sig hlakka almennilega til því að það er svo margt hér sem ekki gengur eins og við áttum von á. Við erum búin að lækka verðið á húsinu um heilan helling og enn hefur ekkert gerst. Það lítur því út fyrir að við komumst ekki í stóra ferðalagið okkar með hjólhýsi eins og við vorum búin að hugsa okkur að kveðja Ástralíu.
Kim har fået et tilbud om arbejde i Danmark så alt tyder på, at vi flytter til København. Det er bare lidt vanskeligt, at glæde sig rigtig fordi det er så meget her som ikke er gået sådan som vi havde regnet med. Vi har gået gevældigt ned i pris på huset, men ingenting sker endnu. Det ser derfor ikke ud til, at vi kommer på vores lange tur med campingvogn, sådan som vi havde tænkt os, at tage afsked med Australien med.
Þann 1. sept. byrjaði vorið hérna. Ég var að vinna um síðustu helgi og tók þessa mynd fyrir utan vinnustaðinn minn.
Den 1. sept. begyndte foråret her. Jeg var på arbejde sidste weekend og tog dette billede udenfor min arbjedsplads.

Permalink
23.08.10
Posted in Hverdagen at 9:19 pm by Ásdís

Þetta á líka við um fullorðna!
Det gælder også voksne!
Permalink
22.08.10
Posted in Hverdagen, Náttúra at 9:35 pm by Ásdís
Það er alltaf jafn gott að koma niður á strönd og við fórum þangað í dag á meðan það var opið hús.
Det er atlid lige dejligt, at komme på stranden og i dag var vi der imens der var åbent hus herhjemme.

Permalink
Posted in Hverdagen at 5:26 pm by Ásdís

Minnsta barnið mitt hækkar um 1sm á mánuði, mér finnst þetta nú ganga dálítið hratt fyrir sig.
Min mindste søn vokser 1cm om måneden, jeg synes det går lige lovlig hurtigt.

Ef þetta heldur svona áfram, þá líða ekki mörg ár þangað til hann nær markmiðinu – að verða eins stór og stærsta barnið mitt.
Hvis det fortsætter på denne her måde så går det ikke mange år før han har nået sit mål- at blive lige så stor som mit største barn.

Permalink
Posted in Hverdagen at 12:01 am by Ásdís
Í dag hef ég fylgt mínum eigin ráðum, þ.e.a.s. þeim ráðum sem ég gef háskólanemendunum mínum þegar þeir eru að farast úr stressi. “Gerðu eitthvað sem þú hefur gaman af …..
I dag har jeg fulgt mine egne råd, d.v.s. de råd jeg giver mine univesitetstuderend når de er ved, at gå til af stress. “Gør noget du rigtig godt kan lide……

Við vorum í garðinum í dag og ég klippti rósirnar, svo er meira segja hægt að tína í blómavönd um miðjan vetur.
Vi var i haven i dag og jeg klippede roserne. Det er til og med muligt at plukke en buket blomster midt på vinteren.
….. taktu eftir umhverfinu….litunum…hljóðunum….lyktinni….
…..læg mærke til omgivelserne…..farverne…lyden….lugten…..

Ekki amalegt að elda og hlusta á Nick Cave á meðan, flytja einn fallegast ástarsöng sem ég hef heyrt .
Ikke dårligt at lytte til en af de smukkeste kærligsange jeg kender, med Nick Cave, mens jeg laver maden.
http://www.youtube.com/watch?v=FG0-cncMpt8

….vertu til staðar í augnablikinu.
….vær til stede i øjeblikket.

Núna erum við að hlusta á Nínu Simone – livet er ikke det værste man har.
Nu lytter vi til Nina Simone – livet er ikke det værste man har.

Við gætum samt alveg þegið að það væri ekki alveg svona stressandi, fasteignamarkaðurinn á hraðri leið niðurávið og hvorugt okkar með vinnu eftir rúman mánuð.
Det ville nu alligevel ikke gøre noget, at det var lille smule mindre stressende. Ejendomsmarkedet på fuld fart ned og ingen af os i arbejde efter lidt over en måned.
http://www.youtube.com/watch?v=XZm0jYXZ_2I
Permalink
15.08.10
Posted in Hverdagen at 5:44 pm by Ásdís

Það hefur verið vor í lofti þessa helgi þó að hitastigið hafi farið niður fyrir frostmark sumstaðar í Vestur Ástralíu í síðastliðinni viku. Við neyðumst til að fara út úr húsi á hverjum sunnudegi og í dag notuðum við tækifærið og fórum til Hillarys, þar var fullt af fólki og gaman að ganga um.
Denne weekend har der været forår i luften, selvom det faktisk var ned i minusgrader nogen steder i Vest Australien i sidste uge. Vi er jo nødt til at forlade huset hver søndag og i dag tog vi til Hillarys, der var der utrolig meget liv og hyggeligt, at gå rundt.
http://www.hillarysboatharbour.com.au/


Permalink
31.07.10
Posted in Hverdagen at 11:51 am by Ásdís
Þetta er þriðja helgin sem fasteignasalan heldur opið hús hérna og ég er strax orðin þreytt á því, ég veit ekki hvernig þetta endar ….. vonandi með að við seljum húsið. Fréttirnar sem maður les hérna eru heldur ekki neitt sérstaklega skemmtilegar.
Nu er det den tredje weekend, ejendomsmægleren har visning her og jeg er allerede træt af det, jeg ved ikke hvor det her ender…..forhåbentlig med, at vi sælger huset. Nyhederne man læser er hellere ikke særlig opmuntrende.
“Australian house prices have fallen for the first time in 17 months, as rising interest rates and the end of government stimulus payments crimp demand. …..Among the capital cities, Perth remained the worst performer with a 2.5 per cent fall in the June quarter, while Adelaide’s 1.1 rise was the strongest result.”
Fasteignasalinn gerir allavega allt sem hann getur, þetta er ein myndin úr bæklingnum.
Ejendomsmægleren gør i hvert tilfælde alt hvad han kan, dette er en af billederne i brochyren.

Permalink
18.07.10
Posted in Dýralíf, Hverdagen at 6:07 pm by Ásdís
Við kíktum til Davíðs í dag, ég hef ekki heimsótt hann þar fyrr þó að hann sé búinn að eiga heima þarna síðan í febrúar. Hann leigir stórt hús með fjórum norskum strákum og hann kann þetta að finna húsnæði með útsýni.
Vi kikkede forbi David i dag, jeg har ikke været der før selvom han har boet der siden i februar. Han lejer et stort hus sammen med fire Nordmænd. Han kan det der med, at finde en bolig med god udsigt.

Hann var í tíu daga fríi á Bali um daginn og ég fékk leyfi til að birta nokkrar myndir hérna á síðunni úr þeirri ferð.
Han var på en ti dagers ferie på Bali for kort tid siden og jeg fik lov, at sætte nogle billeder fra turen her på siden.


Permalink
17.07.10
Posted in Hverdagen at 6:57 pm by Ásdís
Stundum veit maður ekki hvort maður á að hlæja eða gráta, Kim er búinn að vera atvinnulaus í hálft ár og búinn að vera að leita fyrir sér með vinnu í næstum eitt ár. Allan þann tíma hafa varla verið auglýstar stöður sem hann gat sótt um. Í dag uppgötvuðum við að eftir að við settum húsið á sölu hafa atvinnuauglýsingarnar sprottið upp eins og gorkúlur og nú eru sjö mismunandi auglýsingar um stöður hérna í Perth sem eru eins og sniðnar fyrir Kim!
Af og til er det svært, at vide om man skal græde eller grine. Kim har været arbejdsløs i et halvt år og kikket efter job i næsten et år. Hele den tid har der kun været en stilling han kunne søge i Perth som var lige i øjet. I dag fandt vi ud af, at efter at vi satte huset på salg er der blevet annonceret mindst syv stillinger her i Perth som er som skræddersyet til Kim!

Permalink
16.07.10
Posted in Hverdagen at 10:57 pm by Ásdís
Fyrir u.þ.b. þremur viku eignuðust Ástralir nýjan forsætisráðherra. Það var mikið látið með það að hún væri fyrst kvenkyns forsætisráðherra Ástralíu. Sjálf sagðist hún ekki vita hvort væri merkilegra á okkar dögum að hún væri kona eða að hún væri rauðhærð. Mamma hennar sagði af henni sögu í The West Australian sem mér fannst dálítið góð og ætla að birta hérna.
For c.a. tre uger siden fik Australerne en ny statsminister. Det blev meget omtalt i medierne at hun er Australiens første kvindelige statsminister. Selv sagde hun, at hun ikke vidste om det var mærkeligere i vores tid at hun er en kvinde eller at hun er rødhårig. Hendes mor fortalte en historie om hende til The West Australian som jeg har lyst til, at gentage her.

“Julia could not understand why the girls should stay in class to tidy up the classroom while the boys were just running around having a good time. ….. So she said to the teacher that was not fair. Why couldn’t the boys do it one week and they do it the next week. He said to her, `Are you into women’s liberation, Julia.` And she said, she looked at him with utter scorn and said, `I don’t need women’s liberation, I was born free’.” (scorn=fyrirlitning=foragt)
Permalink
« Previous entries Next Page » Next Page »