18.07.10

Litum við / Kikkede forbi

Posted in Dýralíf, Hverdagen at 6:07 pm by Ásdís

Við kíktum til Davíðs í dag, ég hef ekki heimsótt hann þar fyrr þó að hann sé búinn að eiga  heima þarna síðan í febrúar. Hann leigir stórt hús með fjórum norskum strákum og hann kann þetta að finna húsnæði með útsýni.

Vi kikkede forbi David i dag, jeg har ikke været der før selvom han har boet der siden i februar. Han lejer et stort hus sammen med fire Nordmænd. Han kan det der med, at finde en bolig med god udsigt.

Hann var í tíu daga fríi á Bali um daginn og ég fékk leyfi til að birta nokkrar myndir hérna á síðunni úr þeirri ferð.

Han var på en ti dagers ferie på Bali for kort tid siden og jeg fik lov, at sætte nogle billeder fra turen her på siden.

  

  

22.06.10

Aðdráttarlinsa / En zoomlinse

Posted in Dýralíf, Náttúra at 8:41 pm by Ásdís

Kim náði sem betur fer að kaupa aðdráttarlinsu áður en hann missti vinnuna! Við fórum í göngutúr um hverfið á sunnudaginn og það var laveg ótrúlega gaman að taka myndir.

Heldigvis nåede Kim, at købe en zoom linse til kameraet før han mistede arbejdet! Vi gik en tur i nabolaget i søndags og det var utrolig sjovt, at tage billeder.

 

  

01.03.10

Labour Day

Posted in Dýralíf, Hverdagen, Náttúra at 8:35 pm by Ásdís

Það er frídagur hérna í Vestur Ástralíu í dag, Labour Day. Eini munurinn hjá okkur er að Jóhann fór ekki í skólann, við Kim hefðum bæði verið heima hvort eð er. Daníel og Vibeke lögðu af stað til Osló í gær og eru trúlega að verða komin heim núna. Við fórum í dýragarðinn á laugardaginn í ógurlegum hita. Einn starfsmaðurinn í dýragarðinum varaði okkur við kengúrunum, þær voru svo æstar og stressaðar út af hitanum að þær höfðu víst hoppað stjórnlaust fram og aftur á svæðinu þar sem þær eru og það er ekki skemmtilegt að vera fyrir þeim þegar þær koma hoppandi á fullri ferð í hóp. Ég hélt nú að kengúrur væru vanar hita en það er af því að það hefur verið svo rakt undanfarið, þá finnur maður meira fyrir honum. Allavega virðast kengúrurnar gera það. Heyrði í fréttunum að þetta hefur verið heitasta sumar í Vestur Ástralíu síðan mælingar hófust, skrýtið, mér finnst að sumarið í fyrra hafi verið ennþá heitara, kannski ég sé að venjast þessu.

I dag er der fridag her i Vest-Australien, Labour Day. Den eneste forskel det gør hos os er, at Johann ikke skulle i skole. Kim og jeg ville alligevel have været hjemme. Daniel og Vibeke rejste tilbage til Oslo i går og er nok snart hjemme. Vi var i Perth Zoo i lørdags i varmen. En ansat i haven advarede os imod kænguruerne, de var stressede og ophidsede på grund af varmen. De havde vist hoppet heldt vildt i flok frem og tilbage på det område de har. Det er nok ikke morsomt, at komme i vejen for en gruppe hoppende kænguruer. Jeg troede at de var vandt til varmen, men det har været så fuktigt på det sidste at man mærker den meget mere, i hvert fald ser det ud til, at kænguruerne gør det. Jeg hørte på nyhederne, at dette har været den varmeste sommer i Vest Australien siden man begyndte, at måle. Jeg synes egentlig at sommeren sidste år var varmere, måske er jeg bare ved, at blive vandt til varmen.

http://www.auspublicholidays.com/labour-day/2010

Við sáum numbat, ekki í búrinu þar sem þeir áttu að vera heldur á gangstígnum. Ég var nú fegin að wombatinn var inni í sinni girðingu, mér fannst hann einna helst líkjast einhverri risakanínu með stutt eyru.

Vi så en Numbat, men ikke i buret hvor de skulle være men ude på stierne. Jeg er glad for at Wombat holdt sig i sin indhegning. Jeg synes den mindede om en eller anden kæmpe kanin, med korte ører.

http://en.wikipedia.org/wiki/Wombat

Flest dýranna héldu sig í skugga og margir fuglanna stóðu hreyfingarlausir með opinn gogg.

De fleste dyr holdt sig i skyggen og mange af fuglene stod helt stille med næbbet åbent.

Risaskjaldbökurnar kepptust um að komast niður í leðjuna til að kæla sig.

Kæmpeskildpadderne løb nærmest om kap for at komme til, at køle sig ned i mudderet.

Það var nú samt bara gaman þrátt fyrir hitann. Þá á eftir að verða tómlegt í húsinu þegar við erum búin að átta okkur á að Daníel og Vibeke eru farin…..

Det var alligevel sjovt på trods af varmen. Det kommer til, at føles tomt i huset når det går op for os, at Daniel og Vibeke faktisk er rejst……

…við vorum að heiman í dag, fórum á ströndina við Two Rocks.

…vi var ikke hjemme i dag, tog til stranden ved Two Rocks.

02.02.10

Kengúruhindrunarhlaup / Kenguruforhindringsløb

Posted in Dýralíf, Hverdagen at 12:13 pm by Ásdís

Við Kim fórum í sumarbústað um helgina. Við eigum bráðum silfurbrúðkaup og fannst alveg tilvalið að halda upp á það með því að fara í smáfrí, bara við tvö. Við fórum í bústað við William Bay sem tekur u.þ.b. fimm tíma að keyra til. Við komumst ekki af stað fyrr en um hálfsexleytið á föstudaginn. Hérna er komið niðamyrkur klukkan átta á kvöldin svo við keyrðum í myrkri allan seinni hluta leiðarinnar. Það er að segja það var nú ekki almyrkt, það var full tungl og tunglskinið var sterkt. Á tímabili héldum við að það væri bíll fyrir aftan okkur sem alltaf væri að blikka, það var bara máninn sem sem kom fram á milli trjánna. Við keyrðum á vegi þar sem hámarkshraðinn er 90 til 110 km/klst. Þegar við vorum komin rétt suðurfyrir Manjimup, fóru kengúrurnar að koma fram. Þær stóðu uppréttar í vegarkantinum og störðu á okkur á meðan við nálguðumst á fullri ferð, sumar hoppuðu út á veginn.Við höfum aldrei séð eins margar kengúrur og á næsta 100km kafla. Við töldum 35 kengúrur við eða á veginum. Þær voru annað hvort einar eða tvær og tvær saman. Hvað eftir annað hoppuðu þær yfir veginn í veg fyrir bílinn og Kim þurfti að snarbremsa. Þetta var undarleg upplifun, við alveg stíf af að reyna að sjá kengúrurnar í myrkrinu áður en það var of seint, máninn sem óð í trjánum, allt á meðan við spiluðum gömul lög með Billie Holiday á fullu. Mér finnst oft ég muna lítið og illa en þetta er eitthvað sem ég alltaf eftir að muna og er mjög fegin að við keyrðum ekki á neina þeirra.

Kim og mig tog i sommerhus i weekenden. Vi har snart sølvbryllup og syntes det var en rigtig god ide, at fejre det med, at tage af sted bare os to alene. Vi tog til et sommerhus i William Bay hvor det tager omkring fem timer, at køre til. Vi kunne ikke tage af sted før end ved halvsekstiden på fredag. Her er der mørkt klokken åtte om aftenen så vi kørte hele den sidste del af vejen i mørke. Det vil sige, helt mørkt var der nu ikke,fuldmånen skinnede stærkt. Måneskinnet var så kraftigt at på et tidspunkt troede vi der var en bil bag os som konstant blinkede med lysene, vi fandt ud af at det kun var månen som kom frem ind i mellem de høje træer. Vi kørte på en vej hvor hastigshedgrænsen ligger mellem 90 og 110 km/t. Lidt syd for Manjimup begyndte kenguruerne, at komme frem. De stod i oprejst i vejkanten og stirrede på os nærme os i fuld fart, nogle af dem hoppede ud på vejen. Vi har aldrig set så mange kenguruer som vi så de næste 100km, de var enten alene eller to og to sammen. Vi talte 35 kengurer i alt. Mange af dem hoppede ud på vejen så Kim måtte klodsbremse gang på gang. Det var en underlig oplevelse, vi var helt stive af, at prøve, at få øje på kenguruerne i mørket, før det var for sent, måneskinnet som blinkede som neonlys ind imellem træerne, alt imens vi spillede gamle sange med Billie Holiday på fuld drøn. Jeg synes tit jeg har forfærdelig dårlig hukommelse men den oplevelse ved jeg, at jeg altid kommer til, at huske og jeg er meget glad for, at vi ikke kørte på en kenguru.

Við sáum fleir kengúrur í ferðinni, þessar sáum við um hábjartan dag.

Vi så flere kenguruer på turen, disse så vi ved den højlyse dag.

24.01.10

Björgunaraðgerðir / En redningsaktion

Posted in Dýralíf, Hverdagen at 8:11 pm by Ásdís

Daníel og Vibeke björguðu þessari agnarsmáu eðlu frá drukknun í sundlauginni í dag. Það er svo skrýtið hvernig manni finnst sum dýr bara lítil og krúttleg og önnur ógeðsleg. Litlar eðlur eru bara sætar!

Daniel og Vibeke reddede dette lille firben fra druknedøde i vores pool. Det er mærkeligt hvordan man synes nogle dyr er bare søde og nuttede og andre ret modbydelige. Firben er helt klart nuttede!

17.12.09

Nýi kötturinn / Den nye kat

Posted in Dýralíf, Hverdagen at 10:29 pm by Ásdís

Nýi kötturinn er mikið verri en gamli kötturinn, ekki eltir hann mann bara á röndum heldur mjálmar hann hástöfum á meðan. Aftur á móti heyrist varla í gamla kettinum.

Den nye kat er meget værre end den gamle, ikke bare følger den efter en hele tiden, den miaver også højlydt samtidig. Derimod er den gamle kat meget stille.

15.12.09

En morgen på vej til arbejde

Posted in Dýralíf, Hverdagen at 6:44 pm by Ásdís

Á leiðinni heim úr vinnunni í gær ákvað ég að taka með mér myndavél í dag. Það er svo fallegur blómstrandi eucalyptus við bílastæðin. Þegar ég kom út í morgun virtist vera þoka yfir öllu – en það var brunalykt af henni. Það hafa geysað skógareldar hérna u.þ.b. 140km sunnan við okkur, í nágrenni Harvey, síðan á sunnudaginn og reykurinn lá þétt yfir Perth í allan morgun.

På vej hjem fra arbejde i går besluttede jeg mig for, at tage fotografiapparatet med til arbejdet i dag. Det står sådan en smuk blomstrende eucalyptus ved parkeringspladsen. Da jeg kom udenfor i morges, virkede det tæt med tåge -men den lugtede røg. Siden i søndags har det brændt en skovbrand c.a. 140km syd for os, i nærheden af Harvey. Røgen lå tæt over Perth hele morgenen.

http://en.wikipedia.org/wiki/Eucalyptus

Það vor fleiri hrifnir af blómunum en ég…….

Det var flere end mig som godt kunne lide de blomster……

http://en.wikipedia.org/wiki/Rainbow_Lorikeet

12.12.09

Heitur laugardagur / En varm lørdag

Posted in Dýralíf, Hverdagen at 9:42 pm by Ásdís

Við Kim fórum til Guilford í morgun og keyptum fjóra litla notaða stóla sem ég var búin að sjá um síðustu helgi. Það eru margar skemmtilegar búðir í Guilford sem selja notaða hluti, bæði litla og stóra.

Kim og mig tog til Guilford i morges og købte fire små, brugte stole jeg fik øje på sidst weekend. Der er mange sjove brugt butikker i Guilford.

Jóhann er búinn að vera með heimsókn í allan dag, þeir voru náttúrlega mest í lauginni því hitinn fór upp í 40 gráður. Þeir gerðu nú ýmislegt annað líka eins og að spila.

Johann har haft besøg hele dagen. De var selvfølgelig mest i poolen, varmen var oppe på 40 grader i dag. De lavede dog også andre ting, som at spille kort.

Þegar skuggarnir fóru að lengjast og hitinn kominn niður í 34 stig, var hægt að fara að slá.

Da skyggene blev lange og varmen kom ned 34 grader, kunne man slå græsset.

Það eru víst að koma jól og ég varð alveg ægilega ánægð þegar ég sá loksins eitthvað sem minnti mig á “heima” sem ég get líka haft hér, jólastjörnu!

Det nærmer sig vist jul og jeg blev meget glad da jeg endelig fandt noget som mindede om “der hjemme” som jeg også kan have her, en julestjerne!

Við drukkum kvöldkaffið við nýju jólaskreytinguna og horfðum út í náttmyrkrið.

Vi drak aftenkaffen ved den nye juledekoration og så ud i mørket.

Þegar ég er búin að skrifa þetta hérna á síðuna ætla ég að taka Kim mér til fyrirmyndar og leggjast út af með bók.

Når jeg er færdig med, at skrive på siden her, vil jeg gøre som Kim, lægge mig ned med en bog.

Svona var þessi laugardagur.

Det var den lørdag.

ps. ég gleymdi að segja að það er einn köttur í viðbót farinn að þvælast í kringum okkur.

ps. jeg glemte, at fortælle, at der er en kat til som er begyndt, at holde til her.

08.12.09

Góða kvöldið / God aften

Posted in Dýralíf, Hverdagen at 9:42 pm by Ásdís

Þessi flotti náungi bauð mér góða kvöldið þegar ég sótti þvottinn út á snúru.

Denne flotte fyr ønskede god aften da jeg hentede vasketøjet ind fra tørresnoren.

22.11.09

Nótt / Nat

Posted in Dýralíf, Hverdagen at 10:17 pm by Ásdís

Helgin var alveg ótrúlega fljót að líða og ég náði ekki að gera neitt af því sem ég var búin að hugsa mér að gera og nú er nóttin að skella á. Ég var að hengja út og kom þá auga á þennan flotta vef, kóngulóin er tilbúin fyrir nóttina – góða veiði!

Weekenden gik lynhurtigt og jeg nåede ikke, at gøre noget af det jeg havde planlagt og nu er natten der snart. Jeg hængte ud vasketøjet og fik øje på dette smukke spindelvæv. Edderkoppen er klar til natten – god jagt!

« Previous entries Next Page » Next Page »