17.11.10
Posted in Hverdagen at 9:07 pm by Ásdís
Nú er síðasti dagurinn í Ástralíu að kveldi kominn. Við þurfum að fara á fætur klukkan tvö í nótt, ná í Jóhann hjá Davíð og keyra út á flugvöll. Vélin fer í loftið klukkan 6 í fyrramálið og við verðum lent í Kaupmannahöfn annað kvöld eftir að hafa stoppað bæði í Dubai og Frankfurt. Við höfum haft það fínt hérna í Fremantle sem er mikið skemmtilegri en Perth.
Nu er den sidste dag i Australien blevet til en aften. Vi må op klokken to i nat for at hente Johann hos David og så køre til lufthavnen. Flyet går i luften klokken 6 i morgen tidligt og vi lander i København i morgen aften med mellemlanding i Dubai og Frankfurt.Vi har haft det fint her i Fremantle som er betydelige mere charmerende by end Perth.

Þetta verður það síðasta sem ég skrifa á bloggið hérna og mig langar til að þakka Jóhanni bróður sem hvatti mig til að skrifa blogg og sem hefur hjálpað mér með síðuna í fjögur ár, án hans hefði ekki verið nein bloggsíða kölluð “Ásdís í Ástralíu”.
Det her bliver det sidste jeg skriver på blogsiden og jeg har lyst til, at takke min bror Johann som oprindelig opfordrede mig til at skrive en blog og som i fire år har hjulpet mig med siden. Uden ham var bloggen “Ásdís í Ástralíu” aldrig blevet skrevet.
Permalink
13.11.10
Posted in Hverdagen at 8:58 pm by Ásdís
Ég tók nokkrar myndir af skiltum í ferðalaginu okkar sem mig langar til að setja á síðuna hér.
På vores tur tog jeg nogle billeder af skilte som jeg har lyst til, at lægge ud på siden.
Fyrst eitt sem mér fannst ægilega sætt:
Først et jeg synes var rigtig sødt:

Þetta skilti var við byrjunina á göngleiðinni sem við fórum í Kalbarri National Park og ég er fegin að það er ekki hásumar þó að manni findist það svona í lokin að hitinn gæti alveg verið einhversstaðar nálægt 50 gráðum:
Dette skilt var ved starten på den sti vi gik i Kalbarri National Park og jeg var meget glad for at det ikke var midt på sommeren selvom man godt kunne komme i tvivl sidst på turen:

Þetta er blóðug alvara, í þau fjögur ár sem ég hef búið hérna man ég eftir að hafa heyrt tvisvar um fólk som dó úr hita í Kalbarri National Park.
Dette er blodig alvor, i de fire år jeg her boet her har jeg i hvert fald to gange hørt om nogen som døde af heden i Kalbarri National Park.
Vegalengdirnar eru ótrúlegar og ég held að við höfum keyrt u.þ.b. 4500km á ferðalaginu og það er um að gera fyrir bílstjórann að halda athyglinni vakandi:
Afstandene er virkelig store og jeg tror vi har kørt omkring 4500km på vores tur og det er vigtigt for chaufføren at holde koncentrationen:

Við vorum mjög heppin að fá smá rigningu í Millstream-Chichester National Park, þetta skilti sáum við á síðust benzínstöðinni áður en við fórum inn í garðinn:
Vi var heldige, at få lidt regn i Millstream-Chichester National Park, dette skilt så vi på den sidste benzin station før parken:

Permalink
12.11.10
Posted in Hverdagen, Náttúra at 12:11 pm by Ásdís
Eftir að hafa keyrt í gegnum rigninguna komum við til þorps sem heitir Guilderton og liggur við árósa Moore River og gistum á einu fallegasta tjaldstæðinu sem við höfum gist á.
Efter at have kørt igennem regnvejret kom vi til en lille by som hedder Guilderton og ligger ved mundingen af Moore River. Der overnattede vi på en af de pæneste campingpladser vi har været på.

Það var svolítið skrýtið að sjá að áin rennur ekki alveg út í sjó, heldur er þetta eins og stöðuvatn.
Det var lidt mærkeligt, at se at elven løber ikke hele vejen til havet men ligger som en sø tæt ved stranden.

Við fórum í smá göngutúr og eins og flestum stöðum höfðum við ströndina næstum því út af fyrir okkur. Liturinn á hafinu var alveg sterk grænblár og ef einhver hefði málað það svona hefði ég verið viss um að það væri ýkt. Ótrúlega fallegt.
Vi gik en tur i blæsten og som de fleste andre steder havde vi stranden næsten for os selv. Farven på havet var utrolig stærk turkis og hvis nogen havde malet det i den farve ville jeg have sagt at det var falskt og overdrevet. Utrolig smukt.



Permalink
10.11.10
Posted in Hverdagen at 8:37 pm by Ásdís
Dagurinn í dag fór mest allur í keyrslu, við keyrðum um 530 km suður á bóginn og erum núna komin til Guilderton. Við keyrðum m.a. í gegnum “hveitibeltið”. Það var skrýtið að keyra í gegnum svona ræktað land eftir að hafa keyrt lengi í gegnum villta mela og móa, eða “bush” eins og það er kallað hérna. Við vorum að tala um að bændunum hérna veitti ekki af rigningu og að við ættum kannsi að dansa regndans fyrir þá – þess þurfti ekki.
Vi har kørt det meste af dagen i dag, vi kørte c.a. 530 km sydpå og er nu i Guilderton. Vi kørte bl.a. igennem “hvedebæltet”, det var mærkeligt, at køre igennem dyrket land efter at vi har kørt så længe igennem “bushen”. Vi snakkede om at bønderne her kunne godt bruge lidt regn og at vi måske skulle danse regndans for dem – det blev ikke nødvendig.
http://www.wheatbelt.wa.gov.au/wheatbelt.php

Það fór að verða þyngra og þyngra yfir og svo skall rigningin á.
Det blev mere og mere overskyet og så kom regnen.


Permalink
09.11.10
Posted in Hverdagen, Náttúra at 5:55 pm by Ásdís
Við Kim vorum að koma úr 9km göngtúr í Kalbarri National Park sem byrjaði við Nature´s Window.
Kim og mig er lige kommet tilbage fra en 9km gåtur i Kalbarri National Park som begyndte ved Nature’s Window.

Við gengum fyrst með fjallsbrúninni þar sem útsýnið var alveg stórkostlegt, svo færðum við okkur niður og gengum í og meðfram flóðfarveginum, það er ekki mikið vatnsrennslið á þessum árstíma.
Først gik vi på kanten af fjeldet hvor udsigten var helt fantastisk og siden tog vi ned og gik langs floden, eller i flodlejet da det ikke er meget vand i floden på denne tider af året.


Það var svo steikjandi heitt að maður nældi sér í skugga á þeim fáu stöðum sem það var hægt.
Det var så kogende varmt, at man tog en plads i skyggen de få steder det var muligt.

Ég örvænti samt ekki það mikið að ég hoppaði út í þetta græna vatn en Kim gerði það og það var víst mjög svalandi og gott.
Jeg var dog ikke så desperat at jeg hoppede ud i det grønne vand men det gjorde Kim og det var vist meget forfriskende og dejligt.

Við hefðum átt að uppgötva Kalbarri National Park svolítið fyrr því hingað kemst maður á einum degi og getur verið yfir langa helgi. Ég er allavega fegin að við náðum að komast hingað áður en við yfirgefum Ástralíu.
Vi skulle have opdaget Kalbarri National Park før fordi her til kommer man på en dag og kunne tilbringe en lang weekend her. Jeg er i hvert fald glad for, at vi nåede at komme hertil før vi forlader Australien.



Permalink
06.11.10
Posted in Dýralíf, Hverdagen, Náttúra at 10:06 am by Ásdís
Nú erum við í Exmouth, við keyrðum hingað frá Point Samson i fyrradag u.þ.b. 600km.
Nu er vi Exmouth, vi kørte hertil fra Point Samson i forgårs, c.a. 600km

Þetta er góður staður sem við gistum á, það blæs hérna og ég hef meira að segja þurft að breiða sængurverið yfir mig á nóttunni. Við getum lika setið úti fyrir utan hjólhýsið í fyrsta skipta, við höfum ekki getað það fram að þessu því flugurnar angra mann svo við að reyna að troðast upp í nasir, inn í eyru og helst inn í hausinn í gegnum augnakrókana líka, ég skil ekki alveg af hverju þær halda að þær geti troðið sér inn þar. Það hjálpar ekkert að vera með sólgleraugu þær fara á baka við þau og fljúga svo suðandi hvað eftir annað, fram og aftur á milli augnanna og gleraugnanna. Hérna er bara ein og ein fluga á stangli (bara tvær sem sitja á mér núna þar sem ég sit hérna úti og skrifa á tölvuna). Nei, nú var ég aðeins of fljót á mér, þær eru komnar fleiri….Allavega eru þær færri hérna en annarsstaðar hingað til en kannski er þeim að fjölga. Við sendum náttúrlega flugnanetin með gámnum, eins og kortabækurnar, GPS tækið (sem ég veit ekki hvað er á íslensku), alla tónlistardiskana okkar og sitt hvað fleira sem hefði komið sér vel á ferðalagi í Ástralíu. Við gætum náttúrlega alveg keypt okkur flugnanet en það er svo heitt að ég held að ég yrði vitlaus að hafa svona á hausnum.
Vi er på en god campingplads, her blæser det lidt og jeg måtte til og med trække dynebetrækket over mig i nat. For første gang kan vi også sidde udenfor campingvognen. Det har vi ikke kunnet indil nu fordi fluerne er så plagsomme. De prøver, at komme op i næseborene, ind i ørene og øjnekrogene. Det hjælper ikke med solbriller, de går bare bag dem og flyver så frem og tilbage der imellem øjnene og glasset. Her er der bare enkelte stykker (jeg har kun to siddende på mig nu når jeg sidder her og skriver på computeren). Nej, nu var jeg lidt for hurtig eller optimistisk, de er flere nu….. Indtil nu har der i hvert fald været færre fluer her end de andre steder. Vi sendte selvfølgelig vores fluenet sammen med vores ting i containeren, som vores kortbøger, vores GPS og alle vores CD’er og andre ting som ville have været gode, at have på en rejse i Australien. Vi kunne selvfølgelig købe fluenet men det er så varmt at jeg tror jeg ville blive tosset af at gå med sådan noget på hovedet.

Þessi mynd var tekin þegar ég var nýbúin að skrifa þetta.
Dette billede blev taget lige efter, at jeg havde skrevet ovenstående.

Annað gott við staðinn hérna er að það er netsamband!
En anden god ting ved campingpladsen er at her er der internetforbindelse!

Liturinn á jörðinni hérna er alveg ótrúlega fallegur og ég fær aldrei nóg af að bara að sitja og virða hann fyrir mér.
Farven på jorden her er utrolig smuk og jeg kan bare sidde og betragte den.

Við þurfum ekki annað en að fara rétt út fyrir dyrnar til að sjá skemmtilegt dýralíf.
Vi skal bare lige udenfor døren for, at se interessant dyreliv.

Permalink
03.11.10
Posted in Hverdagen, Náttúra at 8:19 pm by Ásdís
Í gær fórum við snemma á fætur, sáum um að bensín tankurinn væri stútfullur og fórum í Millstream-Chichester þjóðgarðinn og eyddum deginum þar. Það er mjög skrýtið að keyra þar um, landslagið er svo breytilegt.
I går stod vi tidlig op, sørgede for at benzin tanken var fuld og tog af sted til Millstream-Chichester nationalparken og var der hele dagen. Det er underligt, at køre rundt der da landskabet er så forskelligt fra det ene sted til det andet.


Eftir að hafa keyrt í gegnum eyðimörkina í hitanum var gott að geta kælt sig niður og það var á fleiri stöðum sem við gátum gert það, þó að sumsstaðar væri vatnsyfirborðið ansi lágt….
Effter at have kært igennem ødemarken i varmen var det godt, at kunne køle sig ned og der var flere steder vi fik mulighed for det, selvom vandstanden var meget lav nogle steder…..

….en svo fór að rigna…
….men siden begyndte det at regne….

…og nóg af vatni til að kæla sig í.
…og rigeligt med vand, at køle sig ned i.

Við keyrðum heim í myrkri undir stórkostlegum stjörnuhimni.
Vi kørte hjem i mørke under en fantastisk stjernehimmel.

http://en.wikipedia.org/wiki/Millstream-Chichester_National_Park
Permalink
01.11.10
Posted in Dýralíf, Hverdagen, Náttúra at 6:21 pm by Ásdís
Point Samson er pínulítið þorp þar sem er akkúrat ekkert um að vera og það hentar okkur jú bara mjög vel, ég er ekki einu sinni búin að koma því í verk að lakka neglurnar á tánum á hægra fæti þó ég sé búin að vera á leiðinni til að gera það allt fríið.
Point Samson er en lille bitte by hvor der ingenting sker og det passer os meget godt. Jeg har ikke engang fået lakket neglene på tæerne på højre fod selvom det har været planen siden begyndelsen af ferien.

Klettarnir í Honeymoon Cove eru alveg ótrúlegir allir einhvernveginn snúnir og undnir.
Klipperne i Honeymoon Cove er helt utrolige, alle vredet og drejet.

Þessi heimsótti okkur áðan og þær voru fleiri saman, allar eitthvað óttalega vitlausar, flugu inn í hjólhýsið hvað eftir annað og ég var bara hissa á að þær skildu ekki steinrota sig.
Denne her besøgte os tidligere i dag, de var flere sammen og virkede alle sammen lige dumme. fløj ind i campingvognen gang på gang og jeg synes det var mørkeligt at de ikke slog sig halvt i hjel.

Permalink
31.10.10
Posted in Hverdagen, Náttúra at 11:16 am by Ásdís
Nú erum við komin i netsamband aftur í smátíma svo ég flýti mér að skrifa á síðuna hérna. Við erum búin að hafa það mjög gott, fyrst í Kalbarri þar sem er ótrúlega fallegt þegar maður fer inn í þjóðgarðinn.
Nu har vi internetforbindelse igen i meget kort tid så jeg skynder mig, at skrive lidt på siden. Vi har haft det rigtig godt, først i Kalbarri hvor det er så smukt når man går ind i nationalparken.

Við keyrðum þaðan áleiðis til Coral Bay og vorum þau einu sem gistu við Wooramel Roadhouse þá nótt.
Vi tog af sted derfra til Coral Bay og var de eneste da overnattede ved Wooramel Roadhouse den nat.

Vegalengdirnar hérna eru hálf óraunverulegar og auðnin mikil en það er samt margt að sjá, eins og þetta termítabú á leiðinni til Coral Bay.
Avstandene her er helt uvirkelige og det er meget øde, alligevel er der meget at se som f.eks. termitboet vi så på vej til Coral Bay.

Jóhann finnur alltaf eitthvað sama hvar við erum.
Johann finder altid noget uanset hvor vi er.

Við erum búi að synda mikið í Coral Bay með “snorkel” sem ég man ekki hvað er í íslensku og sjá allskonar litríka fiska og við syntm meira segja með mjög virðulegri risaskjaldböku sem sveif um eins og drottning sem Jóhann náði aðeins að klappa. Við erum komin í svo algjört frí að við erum alveg búin að missa tilfinninguna fyrir hvaða dagur er.
Vi har snorklet meget ved Coral Bay og set alle mulige farverige fisk. Vi svømmede til og med sammen med en kæmpe skildpadde som svævede majestetisk rundt i vandet og tillod Johann at røre lidt ved sig. Man kan se, at vi virkelig er på ferie da vi fuldstændig har mistet fornemmelsen for hvilken dag det er.


Þegar það eru 255 km á milli bensínstöðva dugar tankurinn ekki þegar maður er með hjólhýsi í eftirdragi.
Når der er 255 km imellem benzinstationerne holder en tank ikke når vi har en campingvogn på slæb.


Permalink
22.10.10
Posted in Hverdagen, Náttúra at 7:48 pm by Ásdís
Við erum búin að eiga mjög góðan dag í Kalbarri National Park í glampandi sólskini og roki. Við vorum meira segja svo heppin að koma auga á hvali sem syntu hérna undan ströndinnni. Það er svo stórkostlega fallegt hérna að maður verður eiginlega að taka þetta í smá skömmtum, við fórum á fætti staði en við ætluðum okkur, við sjáum til hvað verður á morgun, eitt af því sem við erum búin að ákveða að við ætlum ekki rembast við að ná að gera eitthvað heilmikið heldur taka bara því sem kemur.
Vi har haft en rigtig fin dag i Kalbarri National Park i strålende solskin og blæst. Vi var til og med så heldige, at vi så hvaler i vandet ikke så langt fra land. Det er så fantastisk smukt her, at man må tage det i små portioner. Vi var færre steder end vi havde tænkt men ser hvad der sker i morgen. En af de ting vi har bestemt os for er at tage tingene som de kommer og ikke stresse med, at nå en masse.



Við pökkuðum ferðatösku til að fara með til Kaupmannahafnar, það er búið að taka hana upp og grafa fram lopapeysurnar og ullarnærfötin, það var svo kalt síðastliðna nótt að ég vaknaði við kuldann hvað eftir annað. Nú ætlum við að spila spil áður en við förum að sofa.
Vi pakkede en kuffert for at have med til København og nu har vi taget den frem og fundet de uldne trøjer og uld undertøjet for mig. Det var så koldt sidste nat at jeg vågnede gentagne gange ved kulden. Nu skal vi tage et slag kortspil før vi går i seng.
Permalink
« Previous entries Next Page » Next Page »